Athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson segir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur, þar sem honum var gert að sæta fangelsi og að greiða 105 milljón króna sekt í ríkissjóð vegna skattalagabrota, ekki segja alla söguna. Þetta kemur fram í yfirlýsingu Sverris þar sem hann segir aðgerðir yfirvalda hafa lamað rekstur þeirra fyrirtækja sem um ræddi í téðum dómi. Nú þurfi Sverrir sjálfur að sæta þungum viðurlögum vegna vanskila sem hann telur í orsakasamhengi við aðgerðir lögreglu og skattayfirvalda gegn honum sjálfum.
Sjá einnig: Sverrir Einar dæmdur í fangelsi fyrir skattalagabrot – Þarf að greiða 105 milljónir innan mánaðar
Dómurinn var kveðinn upp í gær en þar var Sverri gert að sæta 24 mánaða fangelsi, þar af 21 mánuð skilorðsbundið, og eins þarf hann innan fjögurra vikna að greiða tæplega 105 milljón króna sekt í ríkissjóð.
Málið varðaði rekstur fjögurra einkahlutafélaga, en eitt þeirra mun vera skemmtistaðurinn B á Bankastræti. Rannsókn brotanna hófst árið 2024 þegar bú félags hans var tekið til gjaldþrotaskipta en brotin áttu sér stað á rekstrarárunum 2021-2023. Var Sverrir ákærður fyrir tæplega 60 milljón króna undanskot.
Ákæruvaldið gerði eins kröfu um að Sverrir yrði dæmdur í atvinnurekstrarbann en þeirri kröfu var hafnað með vísan til þess að Sverrir sé þegar í slíku banni fyrir eldri brot.
Fyrirtæki Sverris hafa ítrekað ratað í fréttir, þá oft vegna aðgerða yfirvalda, en í október á síðasta ári boðaði Sverrir skaðabótamál við ríkið og rakti af því tilefni ítarlega það sem hann kallaði fordæmalaust einelti lögreglumanns gegn sér.
Sverrir segir í yfirlýsingu sinni í dag að ekki séu öll kurl komin til grafar. Hann telur aðgerðir yfirvalda ekki standast skoðun og að afleiðingar þeirra hafi ekki fengið nægt vægi við ákvörðun yfirlaga. Hann segist taka ábyrgð á skattskilum alvarlega en bendir á að þeir sem fara með opinbert vald þurfi líka að taka slíku alvarlega.
Yfirlýsingin er eftirfarandi:
„DÓMURINN SEGIR EKKI ALLA SÖGUNA
Í dag var opinberlega fjallað um dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli mínu.
Ég tel að aðgerðir yfirvalda hafi lamað rekstur þeirra fyrirtækja sem um ræðir. Nú er mér gert að sæta þungum viðurlögum vegna vanskila sem ég tel að þessar sömu aðgerðir hafi haft bein áhrif á.
Það er kjarni málsins af minni hálfu.
Ég tel að aðgerðir tiltekinna starfsmanna lögreglu og Skattsins hafi valdið mér og fyrirtækjunum verulegu tjóni, skert tekjuöflun þeirra og haft afgerandi áhrif á möguleika félaganna til að standa skil á vörslusköttum sem komu til greiðslu í kjölfarið.
Í dóminum er fjallað um þessa atburðarás, en að mínu mati eru ekki öll kurl komin til grafar. Ég tel aðgerðirnar ekki standast skoðun og að afleiðingar þeirra hafi ekki fengið nægilegt vægi við ákvörðun viðurlaga.
Ég kvartaði yfir aðgerðunum meðan þær voru að eiga sér stað. Þetta er ekki eftiráskýring sem varð til eftir dóminn.
Ég óska áfram eftir því að aðgerðirnar verði rannsakaðar og upplýst hver tók ákvarðanirnar, á hvaða forsendum og hvaða áhrif þær höfðu á reksturinn. Ég bendi jafnframt á málavaxtalýsingu dómsins og þá vörn sem þar er rakin.
Ábyrgð á skattskilum er tekin alvarlega. Ábyrgð á beitingu opinbers valds verður líka að taka alvarlega.“
Sverrir Einar Eiríksson“