Lögreglustjórinn á Suðurlandi hefur höfðað mál gegn móður fyrir brot í nánu sambandi gegn tveimur dætrum sínum, á tímabilinu frá hausti 2019 til 2. mars 2021, þegar þær voru á aldrinum 4 til 8 ára gamlar. Í ákæru segir að móðirin hafi endurtekið og á alvarlegan og sérstaklega sársaukafullan og meiðandi hátt ógnað heilsu og velferð dætra sinna.
Tilvikunum er nánar lýst í ákæru:
„fyrir brot í nánu sambandi með því að hafa, á tímabili frá hausti 2019 til 2. mars 2021, innandyra á A, endurtekið og á alvarlegan og sérstaklega sársaukafullan og meiðandi hátt ógnað heilsu og velferð dætra sinna: A, og B, sem þá voru 4 – 8 ára gamlar, með andlegu og líkamlegu ofbeldi og hótunum, svo sem hér nánar greinir: endurtekið slegið og klipið þær báðar víðs vegar um líkamann; í eyru, háls, bak, rass, fætur og hendur og togað í eyru þeirra beggja, í eitt skipti í janúar 2021 bitið B handarbak vinstri handar, í eitt skipti rifið í hár A þannig að höfuð hennar skall á skáp, endurtekið greitt hár A svo harkalega að hún grét og hótað því að klippa af henni hárið. Enn fremur með því að hafa ógnað heilsu og velferð beggja barna með því að viðhafa framangeinda háttsemi gagnvart hvoru barni fyrir sig, í viðurvist og að hinu barninu ásjáandi.“
Háttsemi konunnar telst varða við 1. mgr. 218. gr. b. almennra hegningarlaga og er þess krafist að hún verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Í málinu eru gerðar einkaréttarkröfur til handa dætrunum upp á 3 milljónir króna til hvorrar þeirra
Málið var þingfest við Héraðsdóm Suðurlands 8. október síðastliðinn.