Fréttir

Sólveig Anna sendir Bjarna Ben tóninn: „Þessu fylgja afleiðingar“

Mynd
Bjarni Benediktsson og Sólveig Anna Jónsdóttir. Samsett mynd.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins hafi þurrkað út það traust sem hafi orðið til þess að það tókst að ná kjarasamningum árið 2024, hún segir að það muni koma fram með skýrum hætti við gerð næstu kjarasamninga hvernig SA ætli að tryggja frið á vinnumarkaði með rof í sambandi og trausti við Eflingu. 

Sólveig Anna hefur síðustu daga harðlega gagnrýnt hvernig staðið var að gerð kjarasamninga milli VR og SA. Halla Gunnarsdóttir formaður VR sagði að Sólveig Anna væri með sig á heilanum og Bjarni hafnaði alfarið því að eitthvað „skúffusamkomulag“ hefði verið gert við VR, sagði hann að tal um slíkt væri „fullkominn hugarburður“.

Traustið algjörlega horfið

Í færslu sinni í morgun segir Sólveig Anna að SA hafi ákveðið að friðþægja VR og forystu fagfélaganna í stað þess að halda trúnað við breiðfylkinguna, þar á meðal Eflingu. „Samtök atvinnulífsins ákváðu að friðþægja VR og fylgdarlið formanns félagsins, forystu fagfélaganna; í stað þess að halda trúnað við breiðfylkinguna (Efling, SGS, Samiðn og Byggiðn) var þeim sem sýnt höfðu fullkomið ábyrgðarleysi og þverbrotið allt sem hægt er að kalla lágmarks-reglur í samskiptum aðila vinnumarkaðarins umbunað með þátttöku framkvæmdarstjóra SA í gjörningnum. Það er augljóst staðreynd sem enginn heiðarleg manneskja getur neitað,“ segir hún. 

Það þurfi að treysta því að orð standi og vísar hún til Sigríðar Margrétar Oddsdóttur, forvera Bjarna hjá SA. 

„Við tókumst á, oft af hörku, en hún var heiðarleg og sinnti hlutverki sínu af metnaði. Þegar hún sagði eitthvað var hægt að treysta orðum hennar. Það viðkvæma traust sem byggðist upp á hennar tíma var til komið vegna þess að hún kom fram af virðingu við okkur í Eflingu – það var ein af forsendum þess að hægt var að ná kjarasamningum á almennum vinnumarkaði árið 2024 án verkfallsátaka,“ segir Sólveig Anna.

„Nú er það traust algjörlega horfið. Bjarni Benediktsson hefur ekki verið lengi í starfi framkvæmdastjóra SA, en sá tími hefur dugað til að stroka það út svo ekkert er eftir. Í stað þess að koma fram af virðingu við Eflingu og forystu félagsins og sýna heiðarleika í samskiptum hefur hann boðið upp á framgöngu beint úr klækja-stjórnmálunum, í stað raunverulegra samningaviðræðna með þeim grunnreglum sem þar þurfa að vera í gildi. Nýr framkvæmdarstjóri Samtaka atvinnulífsins kemur úr heimi þar sem að orð eru bara verkfæri, ekki lýsing á raunveruleikanum, þar sem skýrar reglur eru ekki til og þær reglur sem þó eru til staðar eru aðeins til að brjóta. Hann kemur úr blekkingar- og speglasal atvinnustjórnmálanna og viðurkennir ekki að þvælan sem þar viðgengst á ekki heima við samningaborð atvinnurekenda og vinnuafls, þar sem fjallað og tekist er á um raunveruleikann.“

„Þessu fylgja afleiðingar“

Í stað þess að slíta kjarasamningum vegna forsendubrests hafi stjórn og trúnaðarráð Eflingar ákveðið að taka upplýsta ákvörðun miðað við stöðuna í dag.

„Fyrir þetta var okkur launað með því að trúnaður við okkur var svikinn og þeim sem ekkert lögðu til málanna annað en upphrópanir og algjört ábyrgðarleysi var launað, með þátttöku SA í fáránlegri revíu VR og co, og að öllum líkindum samkomulagi sem nú er geymt í dýpstu skúffu embættis ríkissáttasemjara,“ segir Sólveig Anna og sendir Bjarna tóninn:

„Samtök atvinnulífsins hafa valið ófrið við Eflingu frekar en að halda áfram tilraun Sigríðar Margrétar til heiðarlegra samskipta við langstærsta félag verkafólks á landinu, það félag sem ætlast er til að geri mótandi kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Þessu fylgja afleiðingar. Næstu kjarasamningar eru ekki langt undan – þá mun koma með skýrum hætti í ljós hvernig SA ætlar að takast að tryggja frið á vinnumarkaði með algjört rof í sambandi og trausti við Eflingu. Ég spái því að það muni ekki ganga vel.“