Fréttir

Rekinn úr flugvél eftir að hafa neitað að skipta um sæti svo par gæti setið saman – „Ég skipti í raun aldrei um sæti“

Mynd
Daza tók upp allt saman á myndbandsupptökugleraugu.

Kólumbíumaður á leið frá Bogota til Atlanta í Bandaríkjunum var rekinn úr flugvél eftir að hafa neitað að skipta um sæti við par svo það gæti setið saman. Maðurinn tók atvikið upp á myndbandsgleraugu.

Breska blaðið The Mirror greinir frá þessu.

Maður að nafni Santiago Daza var rekinn úr flugvél bandaríska flugfélagsins Delta eftir að hafa neitað að skipta um sæti við par svo það gæti setið saman þann 9. september síðastliðinn á El Dorado flugvellinum í Bogota, höfuðborg Kólumbíu. Sætið sem honum var boðið í staðinn var mun óþægilegra.

Upphaflega samþykkti Daza að skipta um sæti þegar flugþjónn bað hann um það en þegar hann sá muninn á sætunum og að það sem honum var boðið var mun óþægilegra þá hafnaði hann því og sat áfram í sínu sæti.

Tók allt saman upp

Daza var með myndbandsupptökuglerlaugu og kveikti á upptöku þegar hann sá að málið stefndi í leiðindi og hann vildi eiga sönnunargögn.

„Í fyrstu samþykkti ég þetta af því ég vildi hjálpa, en þegar ég sá hitt sætið áttaði ég mig á því að það var óþægilegra og þrengra, svo ég ákvað að sitja áfram í sætinu sem mér hafði verið úthlutað. Ég skipti í raun aldrei um sæti,“ segir Daza.

Mynd
Málið setti öll ferðaplönin úr skorðum og olli auka kostnaði.

Segist hann hafa fundið fyrir mjög fjandsamlegu viðmóti frá flugþjónunum. Þeir hafi einnig vitað að hann væri að taka upp og báðu hann að slökkva á upptökunni.

Var hann beðinn um að skýra sína afstöðu í málinu en svo vikið úr flugvélinni. Spurði hann hvers vegna en fékk engin greinargóð svör. Einu svörin sem hann fékk var að flugstjórinn hefði ákveðið þetta og þar við sat.

Buðu inneign

Flugfélagið bókaði Daza í annað flug en ferðaplönin hans fóru úr skorðum og auka kostnaður féll til vegna þessa. Sendi hann kvörtun inn til flugfélagsins sem vildi aðeins gefa honum inneign upp á 150 dollara, eða rúmlega 18 þúsund krónur.

„Ég var ekki bara að leita eftir bótum eða inneign, ég vildi skilja hvers vegna mér var vísað úr fluginu,“ segir Daza.

Delta hefur gefið út yfirlýsingu vegna málsins. Í henni segir:

„Öryggi viðskiptavina okkar og áhafnar er ávallt í fyrirrúmi og samkvæmt alríkisreglum ber viðskiptavinum að fylgja öllum fyrirmælum áhafnarinnar. Við styðjum starfsfólk okkar í viðleitni þess til að viðhalda öruggu og virðingarfullu umhverfi fyrir alla um borð.“