Fimm þingmenn Norðausturkjördæmis stálust í Selárlaug í Vopnafirði utan hefðbundins opnunartíma í nýliðinni kjördæmaviku. Frá þessu greindi RÚV á föstudaginn sl. en þingmennirnir voru ekki nafngreindir í fréttinni. Tók RÚV þó fram hvaða þingmenn ríkismiðillinn hafði haft samband við vegna málsins, en það voru þau Þórarinn Ingi Pétursson og Ingibjörk Isaksen úr Framsóknarflokknum, þeir Þorgrímur Sigmundsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson úr Miðflokknum og Jens Garðar Helgason úr Sjálfstæðisflokknum.
Málið hefur vakið athygli og var til umræðu í þætti Björns Þorlákssonar á Samstöðinni þar sem hann tókst á við Ásthildi Lóu Þórsdóttur úr Flokki fólksins. Björn velti því þar fyrir sér hvort kjördæmavikan væri ekki fyrst og fremst svallveisla fyrir þingmenn og hvort að þarna hefðu verið fimm drukknir þingmenn að fremja húsbrot í Selárlaug.
Sjá einnig: Ásta Lóa og Björn í hár saman eftir sundlaugarferð
Umræðan á Samstöðinni hefur ekki farið fram hjá Össuri Skarphéðinssyni, fyrrverandi ráðherra. Hann segist standa með formanni Miðflokksins, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, í þessu máli sem eigi ekki að hneykslast á. Þvert á móti eigi að styðja menn eins og Sigmund til líkamsræktar. Össur skrifar á Facebook:
„Stórskandall Samtöðvarinnar
Björn Þorláksson á Samstōðinni húðflettir spillta stjórnmálamenn daglega á fjölmiðli sínum. Sjálfur fer ég aldrei í viðtöl hjá honum enda skíthræddur um að hann finni vel faldar beinagrindur sem enn hringla í mínum skáp.
Nú hefur rannsóknarblaðamaðurinn upplýst um alvarlegan, pólitískan glæp. Nokkrir þingmenn í kjördæmaviku, án nokkurs vafa fullkomlega allsgáðir, tóku sér sundsprett eftir lokun í laug sem reyndist í eigu erlends ríkisbubba.
„Húsbrot“ kallaði hneykslaður viðmælandi Samstöðvarinnar athæfið. Meðal sundmanna reyndust vera gömul norðlensk sunddrottning og formaður Miðflokksins.
Ég er hins vegar á þeirri skoðun að Sigmundur Davíð þurfi verulega á því að halda – einsog fleiri bústnir kallar – að taka hressilegan sundsprett daglega. Þess vegna stend ég með honum gegn Samstöðinni í þessu máli.
Mér er nokk sama þó hann geri það á óhefðbundnum tímum – svo fremi hann taki ekki hráa hakkið sitt með í laugina..“