Skoskur maður á fertugsaldri hefur verið dæmdur fyrir kynferðisbrot gagnvart börnum sem spanna sex ára tímabil. Maðurinn er dvergur og hefur leikið Oompa Loompa í gæslaveislum.
Skoska blaðið The Daily Record greinir frá þessu.
Marc Corrieri, 34 ára gamall maður frá Motherwell í Skotlandi, hefur verið dæmdur fyrir kynferðisbrot gagnvart fjölmörgum unglingum á aldrinum 13 til 17 ára. Brotin spanna 6 ára tímabil.
Corrieri er dvergur, 128 sentimetrar að hæð, og hefur starfað við að leika Oompa Loompa í gæslaveislum. En það eru verurnar sem búa til sælgætið í sögunni um Kalla og súkkulaðigerðina eftir Roald Dahl.
Borgaði fyrir myndir
Corrieri hefur nú verið dæmdur fyrir að áreita ungar stúlkur kynferðislega, biðja þær um að senda af sér kynferðislegar myndir eða myndir af þeim að stunda kynlíf með kærustum sínum og borga þeim fyrir.
Corrieri mætti fyrir dóminn og játaði brot gagnvart 10 stúlkubörnum frá apríl árið 2019 til júní árið 2025. Hann hafði ekki þekkt neina þeirra áður heldur fundið þær á samfélagsmiðlum.
Kemur fram að Corrieri hafi sérstaklega falist eftir því að stúlkurnar myndu senda honum myndir af fótleggjum þeirra og sokkum. En einnig af þeim í samförum við kærsta þeirra. Sumar þeirra upplifðu ógn og blokkuðu hann á samfélagsmiðlum.
Einangraður
Diarmid Bruce, verjandi Corrieri, sagði að hann vissi að hegðun hans væri óásættanleg og að hann hefði brugðist.
„Hann hefur aldrei átt í kynferðislegu sambandi við neinn, er mjög einangraður og fannst auðveldara að tala við börn. Hann greindi ekki frá því að hann væri dvergur. Um var að ræða flótta inn í netheiminn til að komast hjá þeim félagslegu fordómum sem hann mætir gjarnan,“ sagði Bruce.
Corrieri hlaut 4 ára fangelsi og verður fylgst með honum í 2 ár til viðbótar eftir það. Þá er hann settur á lista yfir kynferðisbrotamenn.