Fyrirtaka var föstudaginn 8. október í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli manns sem ákærður er fyrir margvísleg kynferðisbrot á árunum 2019 til 2023.
Hann er meðal annars sakaður um hafa í fjölda skipta á þessu árabili haft kynferðismök, þar á meðal endaþarmsmök, við andlega fatlaða stúlku, víðsvegar um höfuðborgarsvæðið, meðal annars í bíl sínum, sem og á heimili sínu og þáverandi vinnustað.
„Ákærði notfærði sér yfirburðastöðu sína og aðstöðumun gagnvart B, en hann bauð henni áfengi, fíkniefni og róandi lyf gegn því að hún hefði við hann samræði og önnur kynferðismök en ákærði notfærði sér að B gat ekki spornað við verknaðinum eða skilið þýðingu hans sökum andlegrar fötlunar,“ segir orðrétt í ákærunni.
Hann er einnig sakaður um að hafa haft í vörslum sínum, á flakkara og í farsíma, 224 ljósmyndir og 197 hreyfimyndir sem sýna börn á kynferðislegan hátt.
Reyndi að fá 12 ára barn til kynlífs
Hann er ákærður fyrir tilraun til nauðgunar og kynferðisbrots gegn barni, en til vara nettælingu, með því að hafa í nóvember árið 2022 reynt að fá 12 ára stúlku til að hafa við sig önnur kynferðismök en samræði með því að setja sig í samband við hana á Snapchat og bjóða henni fjárgreiðslu ef hún hefði við hann munnmök.
Hann er einnig ákærður fyrir blygðunarsemisbrot gegn stúlkunni með því að hafa sent henni mynd af getnaðarlim sínum.
Fyrir hönd þessarar stúlku er gerð einkaréttarkrafa um miskabætur að fjárhæð tvær milljónir króna en fyrir hönd andlega fötluðu stúlkunnar er krafist bóta að fjárhæð fjórar milljónir króna.
Sem fyrr segir er málið rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur en þinghöld eru lokuð.