Æðsti yfirmaður herafla Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Evrópu hefur varað Rússa við því að bandalagið muni svara af fullum þunga ef ráðist verður á eitthvert aðildarríkja þess.
Hann segir að ef einhver verði svo „heimskur“ að gera slíka árás muni NATO tryggja að hún verði með öllu árangurslaus.
Alexus Grynkewich, æðsti yfirmaður herafla NATO í Evrópu, lét þessi orð falla á öryggisráðstefnu í Varsjá í Póllandi fyrr í dag. Reuters greinir frá.
Grynkewich sagði bandalagið vera varnarbandalag en að það myndi stöðva og brjóta á bak aftur hvers kyns árás gegn aðildarríkjum sínum.
„Ef einhver er svo heimskur að ráðast á okkur munum við berjast,“ sagði Grynkewich og bætti við að NATO myndi koma í veg fyrir að árásaraðilinn næði markmiðum sínum.
„Í stuttu máli munum við tryggja að sérhver árás gegn hvaða bandalagsríki sem er verði með öllu árangurslaus,“ sagði hann.
Þótt Grynkewich hafi ekki nefnt Rússland sérstaklega í ræðu sinni segir Reuters ljóst að skilaboðum hans hafi verið beint til stjórnvalda í Moskvu.
Myndu ráðast gegn öllu sem styður árásina
Grynkewich sagði að NATO myndi ekki láta nægja að ráðast gegn þeim hersveitum sem tækju beinan þátt í árásinni, heldur einnig þeim hernaðarmannvirkjum og kerfum sem styddu við hana.
„Ef andstæðingurinn ákveður að halda árásinni áfram eða senda varalið til bardaga munum við brjóta niður það hernaðarkerfi sem beitt er gegn okkur,“ sagði Grynkewich.
„Það á ekki aðeins við um hersveitirnar sem gera árásina, heldur einnig allt það sem styður við þær, sér þeim fyrir nauðsynlegum búnaði og stjórnar aðgerðum þeirra.“
Ummælin koma á sama tíma og spenna milli Rússlands og Evrópuríkja fer vaxandi. Evrópsk stjórnvöld hafa sakað Rússa um að standa að skemmdarverkum, drónaaðgerðum og netárásum gegn ríkjum álfunnar.
Rússar hafa jafnframt varað við því að þeir muni beita kjarnorkuvopnum ef NATO reynir að einangra Kalíníngrad, rússneskt landsvæði við Eystrasalt.