Fréttir

Móðir Anítu í opinskáu viðtali – „Ég hafði stanslausar áhyggjur af henni“

Mynd
Klara Soffía ræðir mál dóttur sinnar í nýjasta þætti Sterk saman.

Klara Soffía Birgisdóttir, móðir Anítu sem nú er vistuð í fangelsinu á Hólmsheiði, gagnrýnir harðlega þá aðstoð sem dóttir hennar hefur fengið innan geðheilbrigðiskerfisins og hjá fangelsisyfirvöldum.

Hún segir dóttur sína hafa þurft á umfangsmiklum stuðningi að halda en ítrekað mætt lokuðum dyrum.

Klara er nýjasti gestur hlaðvarpsins Sterk saman, þar sem hún ræðir erfiða stöðu dóttur sinnar og samskipti fjölskyldunnar við heilbrigðis- og fangelsiskerfið. Mál Anítu hafa áður verið til umfjöllunar í fjölmiðlum.

Segir ástandið hafa versnað

Aníta losnaði úr fangelsi í byrjun apríl síðastliðins eftir erfiða fangelsisvist. Að sögn Klöru hafði dóttir hennar glímt við vanlíðan og þurft á aðstoð geðheilbrigðisþjónustunnar að halda eftir að hún kom heim.

„Ég hafði stanslausar áhyggjur af henni,“ segir Klara, sem lýsir því að hún hafi ítrekað leitað aðstoðar fyrir dóttur sína.

Klara gagnrýnir meðal annars breytingar sem gerðar voru á lyfjameðferð Anítu í byrjun júní. Að sögn Klöru var ákveðið að hætta lyfjameðferð dóttur hennar þrátt fyrir áhyggjur þeirra beggja. Klara telur að sú ákvörðun hafi haft slæm áhrif á líðan dóttur sinnar.

Þá segir hún að dóttir hennar hafi ítrekað leitað á geðdeild án þess að fá þá aðstoð sem hún þurfti að mati fjölskyldunnar. „Ef hún fékk að fara inn á geðdeild var henni hent út morguninn eftir,” segir Klara meðal annars í viðtalinu.

Hún telur að kerfið hafi brugðist dóttur hennar á þeim tíma þegar þörfin fyrir stuðning var hvað mest.

Mikið úrræðaleysi

Aníta er nú aftur vistuð í fangelsinu á Hólmsheiði, þar sem hún er að sögn Klöru í einangrun. Klara segir að ítrekað hafi þurft að flytja dóttur sína úr fangelsinu á geðdeild vegna alvarlegrar vanlíðanar. Telur hún að dóttir hennar eigi frekar heima í sérhæfðri geðheilbrigðisþjónustu en í fangelsi.

Klara gagnrýnir jafnframt samskipti sín við fangelsisyfirvöld og segir að hún hafi átt í erfiðleikum með að fá upplýsingar um stöðu dóttur sinnar.

Hún segist meðal annars hafa lagt fram skriflegt umboð frá Anítu sem heimilaði henni að fá upplýsingar, en að það hafi ekki skilað tilætluðum árangri.

„Lögfræðingurinn fór meira að segja með umboð sem Aníta skrifaði undir um að ég mætti fá allar upplýsingar en það breytti engu,“ segir Klara.

Hún lýsir því að hafa upplifað mikið úrræðaleysi í samskiptum við bæði geðheilbrigðisþjónustuna og fangelsiskerfið.

Í viðtalinu fer Klara hörðum orðum um starfshætti þeirra stofnana sem hafa komið að málum dóttur hennar. Hún telur að ekki hafi verið tekið nægilegt tillit til heilsufars Anítu og að skort hafi á samhæfingu og viðeigandi úrræði.

Klara segist staðráðin í að halda áfram að berjast fyrir því að dóttir hennar fái þá aðstoð sem hún telur hana þurfa.

Viðtalið við Klöru í heild sinni hér að neðan: