Fréttir

Lætur nöfnu sína heyra það vegna ummæla hennar um Gestgjafann - „Tímasetningin gerir þetta verra“

Mynd

Staða hlaðvarpa á Íslandi hefur mikið verið til umræðu undanfarið eftir að Fjölmiðlanefnd skoraði á nokkur vinsælustu hlaðvörp landsins að skrá sig formlega sem fjölmiðla, ellegar sæta sektum. Hlaðvarparar eru óánægðir með þessa framgöngu og líta ekki á sig sem fjölmiðla. Formaður Blaðamannafélags Íslands, Sigríður Dögg Auðunsdóttir, ræddi málið við Vísi á dögunum þar sem hún ræddi hvað einkennir fjölmiðil og hvað það þýði fyrir hlaðvörp. Í viðtalinu sagði Sigríður Dögg eftirfarandi:

„Þess vegna ætti maður kannski ekkert að vera að gera svona mikið úr því hvernig við eigum að skilgreina hlaðvörp. Hlaðvörp eru bara fjölmiðlunarleið, miðlunarleið, það er fjölmiðill. Alveg eins og Gestgjafinn, tökum sem dæmi, miðlar uppskriftum. Jú, jú, þar eru einhverjar greinar sem blaðamenn vinna en mestmegnis er þetta miðlun á uppskriftum. Við höfum aldrei dregið í efa að Gestgjafinn sé fjölmiðill. Ef Gestgjafinn væri með hlaðvarp sem myndi fjalla um uppskriftir, væri það þá ekki fjölmiðill?“

Viðtalið fór ekki fram hjá nöfnu Sigríðar, Sigríði Dagnýju Sigurbjörnsdóttur, sem er eigandi og framkvæmdastjóri Birtings útgáfufélags sem gefur meðal annars út Gestgjafann. Sigríður Dagný hefur nú svarað nöfnu sinni fullum hálsi, en henni sárna orð formanns Blaðamannafélagsins í garð eigin félagsmanna.

Sigríður Dagný segir að vissulega hafi nafna hennar skilgreint Gestgjafann sem fjölmiðil, en á sama tíma hafi hún gert lítið úr starfsmönnum miðilsins með því að halda því fram að vinna þeirra felist fyrst og fremst í því að „miðla uppskriftum“. Sigríður Dagný skrifar í grein sinni hjá Vísi: 

„Áhrifavaldur getur sem sagt verið blaðamaður. Blaðamaður á ritstjórn Gestgjafans, sem greiðir félagsgjöld til BÍ og starfar eftir siðareglum félagsins, skrifar hins vegar „einhverjar greinar“ innan um uppskriftir.

Ég átta mig ekki á því hvaða mælikvarða formaðurinn notar en hún er þarna að flokka eigin félagsmenn. Þeir sem skrifa um stýrivexti eru í efsta flokki og þeir sem skrifa um mat í öðrum. Hvar lenda þá íþróttafréttamenn, menningarblaðamenn eða þeir sem skrifa um heilsu og ferðalög?“

Sigríður Dagný segir að Blaðamannafélag Íslands eigi að standa með öllum félagsmönnum sínum en ekki raða þeim upp eftir því hversu merkilegt formanninum þykir viðfangsefni þeirra.

„Tímasetningin gerir þetta verra. Úthlutunarnefnd um stuðning við einkarekna fjölmiðla hefur í frummati komist að því að efni Vikunnar og Húsa og híbýla, systurblaða Gestgjafans, teljist ekki fréttir. Formaðurinn segir sjálf í viðtalinu að héraðsmiðlar „sem stunda alvöru blaðamennsku“ þurfi stuðning og að gerð sé krafa til þess. Þegar formaður blaðamanna talar um alvöru blaðamennsku og gerir lítið úr tímaritunum er ekki skrýtið að nefndin dragi sömu línu.“

Sigríður Dagný hvetur nöfnu sína til að fletta Gestgjafanum. Þá gæti hún séð að þar má finna viðtöl við matreiðslumenn, bændur og framleiðendur, umfjöllun um veitingastaði og fólkið sem rekur þá, nýsköpun í matargerð, matarmenningu og fleira. Þegar Morgunblaðið og Vísir skrifa um mat og landbúnað kallast það blaðamennska. Hvers vegna ætti annað að eiga við um sérhæft tímarit?

Telur Sigríður Dagný að þarna hafi formaður Blaðamannafélagsins afhjúpað að hún átti sig ekki á því hvernig fjölmiðlar eru reknir. Einkareknir miðlar lifa á áskrifendum og auglýsendum. Þessir aðilar greiða fyrir heildina, einkum fyrir efni eins og viðtöl og umfjallanir um mat, hönnun og mannlíf. Þetta sé efnið sem auglýsendur vilja hafa nafn sitt nálægt og efnið sem borgar laun blaðamanna.

„Blaðamannafélagið berst fyrir öflugri fjölmiðlun, segir formaðurinn. Það gerum við líka. Öflug fjölmiðlun er fjölbreytt og blaðamennirnir sem skrifa um mat, hönnun og mannlíf eiga heima í þeirri baráttu. Ég vona að félagið þeirra standi með þeim.“