Fréttir

Læknir varð fyrir launamisrétti

Mynd
Myndin er úr safni.

Kærunefnd jafnréttismála hefur komist að þeirri niðurstöðu að kvenkyns sérfræðilæknir sem starfar á Landspítalanum hafi orðið fyrir launamisrétti af hálfu spítalans, sem hafi greitt karlkyns sérfræðilæknum sem sinntu sama eða sambærilegu starfi hærri laun.

Launamismununin átti sér stað á þriggja ára tímabili frá 2020-2023. Læknirninn sneri sér til kærunefndar jafnréttismála árið 2024. Í kærunni kom fram að hún hefði starfað sem sérfræðilæknir á Landspítalanum frá árinu 2007. Sagðist hún hafa af tilviljun komist að því að karlmaður sem hóf störf sem sérfræðilæknir, á sömu deild, árið 2023 var í hærri launaflokki en hún. Var hún hækkuð um launaflokk í kjölfarið en komst síðan að því að karlkyns sérfræðilæknar sem hefðu starfað í sambærilegri stöðu og hún á spítalanum hefðu verið hærra launasettir á árunum 2020-2023. Krafðist læknirinn afturvirkrar leiðréttingar á launaflokkun sinni en því hafnaði Landspítalinn. 

Í kjölfarið lagði læknirinn fram kæru til kærunefndar jafnréttismála.

Snerist málareksturinn fyrir nefndinni einna helst um flokkun læknisins í launaflokk, á þessu tímabili 2020-2023.

Viðurkenning

Í niðurstöðu kærunefndar jafnréttismála segir að ljóst sé að lækninn og Landspítalann greini töluvert á um ákvæði í kjarasamningi lækna. Nefndin gerir ítarlega grein fyrir ákvæðum samningsins og segir að í málinu liggi fyrir að læknirinn hafi um langt skeið gert athugasemd við launaflokkun sína og ágreiningur hafi verið milli hennar og Landspítalans um ákvæði í kjarasamningnum. 

Hins vegar verði ekki annað séð en að sú breyting sem gerð var á launaröðun læknisins, eftir kvörtun hennar haustið 2023, hafi byggst á því að læknirinn hafi ekki verið réttilega metin fram til þess tíma, enda hafi Landspítalinn ekki sérstaklega vísað til breytinga á störfum eða starfsbundnum þáttum í starfi hennar, sem réttlætt hafi þá breytingu eða hafi átt sér stað á umræddum tíma eða hafi ekki verið til staðar á tímabili því sem þetta mál nær til.

Af gögnum málsins megi ráða að læknirinn hafi fyrir leiðréttinguna verið launasett lægra í samanburði við karlkyns sérfræðilækna sem hún beri sig saman við. Hún hafi því leitt líkum að því að hafa orðið fyrir launamismunun í skilningi laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.

Nefndin segir að röksemdir spítalans fyrir því að karlkyns læknarnir hafi, vegna starfsbundinn þátta, verið með hærri laun ekki duga til að skýra launamuninn og vísar til þess að á umræddu tímabili hafi læknirinn ekki notið starfsbundinna þátta við ákvörðun launa hennar. Landspítalinn hafi þar með ekki sýnt fram á að launamunurinn fyrir sömu eða jafnverðmæt störf læknisins og karlkyns kollega hennar hafi skýrst af öðrum þáttum en kyni.

Niðurstaða nefndarinnar er því sú að Landspítalinn hafi brotið lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna með ákvörðun launa læknisins.