Andri Már Mortenssen Birgisson hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir hlut sinn að svokölluðu Reykholtsmáli. Frá þessu greinir Vísir.
Um málið hefur verið sagt að það eigi sér vart hliðstæðu á Íslandi, en Andri ásamt meðákærðu frelsissvipti karlmann af palestínskum uppruna dögunum saman, beitti hann hrottalegu ofbeldi, rændi ævisparnaði hans og þvingaði hann svo til að yfirgefa Ísland. Meðal mikilvægra gagna í málinu voru upptökur sem fundust á farsíma Andra Más, en hann hafði tekið upp öll símtöl sem hann átti við meðákærðu og aðra á í aðdraganda frelsissviptingarinnar, á meðan á henni stóð og svo í kjölfarið. Þessar upptökur voru spilaðar í dómsal og á einni þeirra mátti heyra Andra lýsa því yfir að hann ætli að frelsissvipta brotaþolann segja svo við hann: „Ég er bara að fara að ræna þig, ég er ekki að grínast. Mér þykir bara mikið vænna um mitt líf heldur en þitt. Ég svífst einskis, mér er skítsama.“5
Sjá einnig: Sakborningur í Reykholtsmálinu: „Ég svífst einskis, og hvað ætlarðu að gera?“
Unnusta Andra Más, Ingunn Rut Sigurðardóttir, hlaut þriggja ára dóm en hún hafði játað sök að hluta við aðalmeðferð málsins. Faðir Ingunnar, Sigurður Gunnar Ásgeirsson, hafði neitað sök en hlaut tveggja og hálfs árs dóm.
Brotaþoli í málinu hafði verið leigjandi Sigurðar um árabil, en Sigurður taldi hann skulda sér vangoldna leigu.
Bróðir Andra, Pétur Már Mortensen Birgisson, var dæmdur í þriggja ára fangelsi. Níels Pálmar Benediktsson, kunningi Andra, var dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi og annar kunningi, Halldór Logi Sigurðsson, var dæmdur í sex mánaða fangelsi.
Samkvæmt ákærðu fóru Halldór og Níels ásamt Andra að heimili brotaþola þegar frelsissviptingin hófst, en Halldór og Níels yfirgáfu vettvang nokkrum klukkustundum síðar. Ingunn og Pétur slógust svo í för með Andra og samkvæmt ákærðu hafði Sigurður eins komið á vettvang og ógnað brotaþola.
Sjá einnig: Sláandi upptökur spilaðar í Reykholtsmálinu - „Don’t do anything stupid“
Dómurinn var kveðinn upp klukkan 15 í dag og hefur ekki verið birtur á vefsíðu dómstóla.