Fréttir

Fasteignasali sneri tapi í sigur - Ósannað að hann hafi vitað af myglu í eign sem hann seldi

Mynd
Myndin er úr safni.

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt fasteignasala, eða nánar til tekið fasteignasölunni sem hann starfar á, í vil í deilumáli við kaupanda fasteignar. Deilan snýst um myglu en héraðsdómur ógilti úrskurð kærunefndar vöru- og þjónustukaupa, í málinu, sem hafði gert fasteignasalanum að greiða kaupandanum bætur. 

Sagði nefndin í sínum úrskurði að fasteignasalinn hefði ekki upplýst kaupandann um að mygla hefði myndast við glugga á efri hæð, húss í Reykjavík sem sá síðarnefndi keypti, vegna leka. Taldi nefndin að fasteignasalinn hefði ekki sinnt lagalegum skyldum sínum og því ætti hann að greiða kostnað við viðgerð, 1,1 milljón króna. Upphæðin var á endanum greidd en við bættust dráttarvextir og innheimtuþóknun til handa lögmannsstofu.

Sjá einnig: Fasteignasali situr í súpunni vegna myglu

Fasteignasalan sætti sig ekki við þessa niðurstöðu og höfðaði mál á hendur kaupandanum til að fá úrskurði nefndarinnar hnekkt og endurgreiðslu á því fé sem kaupandinn fékk greitt.

Kaupandinn hafði tjáð nefndinni að þegar hann kom að skoða eignina hafi herbergið þar sem myglunnar varð vart verið lokað en fyrir dómi sagði hann að það hefði verið opið en pappakassar hafi verið í herberginu sem byrgt hafi sýn á vegg og glugga.

Fasteignasalinn og vinnuveitendur hans vísuðu því alfarið á bug að kaupandinn hefði fengið rangar og ófullnægjandi upplýsingar um ástand eignarinnar.

Ekki stoð

Fasteignasalan krafðist ógildingar á úrskurðinum á þeim grundvelli að hann ætti sér ekki stoð í gögnum málsins. Kaupandinn hafi lagt fram ljósmyndir sem teknar hafi verið mörgum mánuðum eftir að fasteignasalinnn skoðaði eignina, þegar hún var sett á sölu, og útbjó í kjölfarið söluyfirlit. Það sé því ósannað að fasteignasalanum hafi verið kunnugt um lekann. Kaupandinn væri þar að auki iðnmenntaður og hafi ekki gert athugasemd við ástand eignarinnar við sölumeðferðina þar að auki hafi, samkvæmt fyrstu tilkynningu kaupandans, ummerkin um mygluna verið lúmsk. Þar af leiðandi hafi fasteignasalinn ekki gerst sekur um saknæma háttsemi og væri þvi ekki bótaskyldur.

Vildi fasteignasalan einnig meina að kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefði ekki uppfyllt rannsóknarskyldu sína. Gerðar voru síðan ýmsar aðrar athugasemdir við úrskurðinn.

Kaupandinn sagði á móti að úrskurðurinn ætti að standa. Það stæðist ekki að fasteignasalinn hefði ekki vitað af lekanum og myglunni enda væri hann þá að viðurkenna að hafa ekki skoðað eignina nógu vel. Fasteignasalinn hefði ekki uppfyllt lagalegar skyldur sínar. Kaupandinn andmælti athugasemdum fasteignasölunnar við úrskurð kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Hann andmælti því einnig sömuleiðis að iðnmenntun hans hefði einhverja þýðingu í málinu enda væri hann rafvirki og hefði enga sérþekkingu á myglu.

Viðsnúningur

Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur segir að niðurstaða kærunefndar vöru- og þjónustukaupa, um að fasteignasalinn hafi átt að upplýsa í söluyfirliti um að gluggi í einu herbergi læki og að mygla væri byrjuð að myndast vegna þessa, hafi ekki næga stoð í þeim gögnum sem lögð voru fyrir nefndina. Ljósmyndir sem kaupandinn lagði fram hafi verið ódagsettar en lagt hafi verið til grundvallar að þær hafi verið teknar við afhendingu eignarinnar til kaupandans, um miðjan apríl 2024. Þá hafi hins vegar verið sex mánuðir frá því að fasteignasalinn skoðaði eignina vegna sölumeðferðar.

Bendir dómurinn einnig á að þegar kaupandinn hafi fyrst haft samband, með tölvupósti, við fasteignasalann vegna myglunnar hafi hann upplýst um að ummmerkin um mygluna væru lúmsk. Það hafi ekki verið lagðar fram sannanir fyrir því að myglan hafi verið til staðar þegar fasteignasalinn skoðaði eignina vegna sölumeðferðarinnar. Kærunefndin hafi heldur ekki fært nein rök fyrir því að myglan hafi verið sýnileg þegar hann skoðaði eignina og engin gögn um það hafi verið lögð fyrir nefndina. Dómurinn tekur heldur ekki undir það með nefndinni að skilyrði laga fyrir bótaábyrgð fasteignasalans hafi verið uppfyllt.

Í ljósi þessa er úrskurður kærunefndar vöru- og þjónustukaupa felldur úr gildi og kaupandinn dæmdur til að endurgreiða fasteignasölunni, féð sem nefndin hafði gert síðarnefnda aðilanum að greiða þeim fyrrnefnda, alls um 1,2 milljón króna auk dráttarvaxta.