Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, varar við stórri lægð sem nú er á sveimi í Atlantshafi. Hún geti hæglega valdið óskunda hér á landi.
„Lægð sem fylgjast þarf með,“ segir Einar í færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann fjallar um lægð sem berst frá austanverðum Bandaríkjunum í sveig norðaustur um Atlantshafið. Lægðin stefni á Ísland.
Segir hann að breyting frá spám gærdagsins sé sú að dýpkunin er meiri en áður var gert ráð fyrir. Síðdegis á miðvikudag má þannig gera ráð fyrir tölunni 936 hPa skammt undan Hornafirði.
„Svo djúpar lægðir eru fáséðar hér við land og í október er aðeins einu sinn vitað til þess að loftvog hafi fallið niður fyrir 940 hPa í mælingu. Það gerðist 1963 þann 19. 938,4 hPa á Stórhöfða. Veðrið þá var víst ógurlegt og olli sjávarflóðum,“ segir Einar. „Sé svo sem hvað mestu veldur nú, er að sjálf lægðin "gleypi" aðra minni sem verður til þess að spinnið og hringhreyfingin magnast enn frekar upp. Þar með ákefð dýpkunarinnar. Sjálf dýpkunin reiknast 44 hPa frá kl. 12 á morgun, þriðjudag til kl. 12 á miðvikudag.“
Einar segir að grannt þurfi að fylgjast með þessari þróun næstu tvo til þrjá sólarhringa.
„Mjög djúpar lægðir eins og sú sem nú er í pípunum valda langoftast óskunda hér og stundum verulegnum vandræðum og með eigntjóni,“ segir hann. „En það er enn langur vegur frá Atlanta til Akureyrar!“