Kynnt hafa verið í samráðsgátt stjórnvalda áform um lagabreytingar þegar kemur að verðtryggðum fasteignalánum. Meðal helstu breytinga sem til stendur að gera er að lækka hámarkslánstíma niður í 25 ár, setja vissar takmarkanir á hækkun höfuðstóls og gera einnig breytingar á öðrum lánum sem hafa svipaða eiginleika.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið ber ábyrgð á málinu og kynningin á áformunum var sett inn í samráðsgátt á föstudag en lítið virðist hafa farið fyrir umræðu um áformin.
Í kynningunni segir að áformað sé að leggja fram lagafrumvarp sem mæli fyrir um að hámarkslánstími verðtryggðra fasteignalána til neytenda verði 25 ár og takmarki jafnframt veitingu annarra lána með svipaðan greiðsluferil og lengri verðtryggð lán. Áformað sé að heimilt verði að veita undanþágur frá hámarkinu vegna ákveðins hundraðshluta veittra lána.
Þau einu
Segir enn fremur að verðtryggð fasteignalán séu þau einu sem njóti nokkurrar útbreiðslu meðal neytenda hér á landi þar sem kostnaður sé reglubundið lagður við höfuðstól þannig að eftirstöðvar fari hækkandi á hluta lánstímans. 25 ára hámarkslánstími tryggi að höfuðstóll verðtryggðra lána hækki ekki að nafnvirði á neinu 12 mánaða tímabili á lánstímanum miðað við meðalvexti nýrra verðtryggðra lána hjá bönkum og lífeyrissjóðum undanfarin 10 ár (3,5 prósent) þegar verðbólga sé við verðbólgumarkmið Seðlabankans, sem er 2,5 prósent.
Til þess að styðja við markmið lagasetningarinnar sé einnig áformað að frumvarpið muni takmarka veitingu lána sem hafi svipaða eiginleika og verðtryggð lán til lengri tíma en 25 ára. Í því skyni sé áformað að frumvarpið mæli fyrir um hámark á því hversu mikill kostnaður, annar en verðbætur, megi með reglubundnum hætti leggjast við höfuðstól fasteignalána til neytenda. Með því sé átt við að við lánveitingu verði skilmálum hagað þannig að nafnvirði eftirstöðva hækki ekki umfram ákveðið hlutfall á hverju ári lánstíma vegna uppsöfnunar vaxta eða annars kostnaðar á höfuðstól.
Áformað sé að lögin taki gildi 1. janúar 2027.
Pakkinn
Í nánari lýsingu á áformunum segir að þau séu liður í húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar frá október 2025 þar sem fram komi að ráðuneytið muni leggja fram tillögur um að draga úr vægi verðtryggingar. Áfram sé eftirspurn eftir verðtryggðu lánsfé og fjárfestingarkostum en reynsla síðustu 20 ára hafi varpað skýrara ljósi á neikvæð áhrif verðtryggingar, ekki síst áhrif verðtryggðra fasteignalána á miðlun peningastefnu Seðlabankans og eignamyndun heimila.
Segir enn fremur að framboð óverðtryggðra húsnæðislána hafi aukist til muna, dregið úr kostnaði og hindrunum við uppgreiðslu og endurfjármögnun lána, m.a. þar sem lögfest hafi verið hámark á uppgreiðslugjöldum fasteignalána. Samhliða aukinni samkeppni banka og lífeyrissjóða hafi þetta stuðlað að miklum hreyfanleika á íslenskum íbúðalánamarkaði. Reynslan sé sú að neytendur færi lán sín í verulegum mæli milli lánveitenda og milli verðtryggðra og óverðtryggðra lána þegar vextir, verðbólga og aðrar aðstæður breytist.
Þegar vextir óverðtryggðra lána hækki geti heimili lækkað mánaðarlega greiðslubyrði með því að endurfjármagna með verðtryggðu láni. Á þeim sé hluti fjármagnskostnaðarins lagður við höfuðstól frekar en staðgreiddur. Þegar verðbólga hækki hratt geti greiddir vextir verðtryggðra lána beinlínis lækkað á sama tíma og nafnvextir hækki. Hagþróun hér á landi síðustu fimm ár þyki vera sterklega til marks um að slík tilfærsla geti dregið úr og tafið áhrif stýrivaxtahækkana Seðlabankans á eftirspurn heimila, þótt áhrif stýrivaxta á hagkerfið séu jafnframt um aðra farvegi. Tilteknar erlendar rannsóknir styðji þessa kenningu.
Reglur
Segir fjármála- og efnahagsráðuneytið enn fremur að frá árinu 2021 hafi reglur Seðlabankans um hámark greiðslubyrðar takmarkað að nokkru leyti svigrúm til veitingar langra verðtryggðra fasteignalána. Þótt raunverulegur lánstími geti verið lengri skuli við mat á greiðslubyrði miða við að hámarki 25 ára lánstíma fyrir verðtryggð lán, en allt að 40 ára lánstíma fyrir óverðtryggð lán. Lengri lánstími verðtryggðs láns umfram 25 ár lækki því ekki þá greiðslubyrði sem miðað sé við samkvæmt reglunum.
Viðskiptabankarnir hafi jafnframt þrengt skilmála verðtryggðra lána undanfarin ár. Sú þróun hafi meðal annars átt sér stað í kjölfar aukinnar ásóknar heimila í verðtryggð lán þegar vextir hækkuðu á árunum 2023 og 2024 og síðar í kjölfar dóms Hæstaréttar.
Samhliða aukinni ásókn heimila í verðtryggð lán eftir vaxtahækkanir áranna 2023 og 2024 hafi lánveitendur þrengt framboð og skilmála slíkra lána. Hámarkslánstími hafi verið styttur í einhverjum tilfellum og vextir verðtryggðra lána hækkað á sama tíma og vextir óverðtryggðra lána tóku að lækka. Munur á greiðslubyrði milli lánaformanna hafi því minnkað og dregið að því leyti úr því hagræði sem fylgdi verðtryggðum lánum. Eftir vaxtadóm Hæstaréttar haustið 2025 hafi bankarnir jafnframt endurskoðað lánaframboð sitt og skilmála um vaxtaákvarðanir. Hluti þeirra breytinga hafi verið tímabundinn, en sumar takmarkanir á framboði og lánstíma verðtryggðra lána standi enn.
Dæmi séu um viðskiptabanka sem veiti aðeins óverðtryggð lán eða aðeins til fyrstu kaupenda og að hámarki til 20 ára. Einn viðskiptabanki veiti aðeins verðtryggð lán til 20 ára og aðeins til fyrstu kaupenda. Bankarnir veiti húsnæðislán til að hámarki 30 ára, en hámarkslánstími lífeyrissjóða sé almennt lengri. Fyrirhuguð lagasetning sé framhald þeirrar þróunar.
Áhrif og markmið
Ráðuneytið segir að markmiðið með þessari fyrirhuguðu lagasetningu sé að draga með skipulegum hætti úr vægi verðtryggingar á Íslandi, auka virkni hagstjórnartækja og stuðla að fjármálastöðugleika. Hin áformaða lagasetning stuðli að þessum markmiðum með því að takmarka almennt veitingu verðtryggðra fasteignalána til neytenda til lengri tíma en 25 ára sem og annarra fasteignalána til neytenda sem leiði til sambærilegrar uppsöfnunar kostnaðar á höfuðstól.
Þegar kemur að mati fjármála- og efnahagsráðuneytisins á áhrifum þessara áforma á heimilin og fyrirtækin í landinu þá segir að minna vægi verðtryggðra fasteignalána minnki einnig skuldsetningu heimila og minnki líkur á því eigið fé heimila hverfi eða verði neikvætt þegar raunverð húsnæðis lækki. Fyrri nefndir og starfshópar hafi lagt töluverða áherslu á þennan eiginleika verðtryggingar, samhliða áhrifum hennar á miðlun peningastefnunnar. Almenn skuldsetning heimila og fyrirtækja sé hins vegar nú hófleg, viðnámsþróttur þeirra mikill og vanskil lítil. Minni skuldsetning sé því ekki meginhvati fyrirhugaðrar lagasetningar.
Talið sé að löggjöfin geti minnkað sveiflur í stýrivöxtum og raunverði húsnæðis, sem gæti jafnframt orðið lægra en ella til lengri tíma litið. Telja megi að þetta hafi ávinning í för með sér fyrir þá sem standi utan íbúðamarkaðar og þá sem búi jafnan við hæstu greiðslubyrðina af íbúðalánum í hlutfalli við tekjur, þ.e. fyrstu kaupendur, ungt fólk og tekjulága.
Nánar er hægt að kynna sér hinar fyrirhuguðu breytingar á verðtryggðum fasteignalánum og matið á áhrifum þeirra nánar hér.