Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins og fyrrverandi ráðherra, gagnrýnir Björn Þorláksson fjölmiðlamann og þáttastjórnanda á Samstöðinni fyrir að svara henni ekki, Björn bendir henni á að honum beri ekki skylda til þess.
Orðaskipti þeirra komu í kjölfar fréttar RÚV um þingmenn sem stálust í sund í Selárlaug í Vopnafirði eftir lokun. Sundlaugarferðin í kjördæmavikunni kallaði fram viðbrögð Björns á Facebook:
„Ég verð að hrósa Rúv fyrir að segja okkur í raun hverjir svömluðu þarna um með Þórarni án þess þó að staðhæfa það með óyggjandi hætti. Svona mannamót eru hjá þingmönnum fyrst og fremst svallveizlur - ekki satt?“
„Voru þarna fimm þingmenn sem frömdu fullir húsbrot?“
Ásthildur Lóa, sem er oft kölluð Ásta Lóa, sem var í viðtali hjá Birni sem vakti mikla athygli í febrúar síðastliðnum, svaraði honum:
„Ef með "svona mannamót" þú átt við kjördæmaviku, þá hefur engin þeirra sem ég hef tekið þátt í verið "svallveisla". Dagskrá þingmanna í Suðurkjördæmi hefur alltaf verið mjög þétt og engin tími gefist til "svalls" eða (mér vitanlega) hvarflað að nokkrum manni þar að stinga upp á slíku. Svona fullyrðingar sem setja allra þingmenn undir sama hatt, kunna að hljóma töff í eyrum einhverra, en eru ekki beint vönduð fréttamennska og ansi langt seilst að bendla hina 58 sem sinna sama starfi við ... ja, húsbrot, sem 5 menn frömdu í fylleríi í vinnuferð,“ segir hún.
Björn sagði að það væri ekki stunduð fréttamennska á hans eigin persónulegu bloggsíðu. „En hvað segirðu? Voru þarna fimm þingmenn sem frömdu fullir húsbrot? Nú fer þetta fyrst að verða spennandi...“
Fór þá að færast hiti í umræðurnar en Ásta sagði það væri undir honum sjálfum komið hvort hann vandaði málflutning sinn fyrir utan vinnu:
„Þar sem þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég hef sett spurningamerki við málflutning á "þinni bloggsíðu" og gert athugasemdir á messenger, sem þú virtir ekki svars þegar ég fór fram á rökstuðning, verð ég bara að vona að fréttamennskan sé vandaðri.“
Á sorglegum villigötum
Björn lét þetta ekki eftir liggja:
„Ef þú heldur að í hvert skipti sem þú sendir mér tóninn þá beri mér skylda til að svara þér, þá ertu satt að segja á sorglegum villigötum og að því er virðist með einkennilegar hugmyndir um valdsvið þitt...“
Ásta Lóa svaraði honum þá ítarlega:
„Ég hef EINU SINNI beðið þig um rök fyrir fullyrðingu sem þú slengdir fram og var algjörlega út í hött. Bæði röng og meiðandi. Ég bað þig um að segja mér hvað þú værir að vísa í með orðum þínum sem þú gast ekki gert. Þetta var 1. og 2. maí á þessu ári,“ segir hún.
„Ef það eru "einkennilegar hugmyndir um valdsvið mitt" að biðja um rök frá manni, sem vill vera tekin alvarlega sem fjölmiðlamaður, þegar hann hendur fram röngum fullyrðingum, er gríðarlega langt seilst.“
Hún vill ekki að allir þingmenn séu settir undir sama hatt vegna hegðunar fárra:
„Hegðunar sem mér finnst ekki bara fyndin, þó enn séu greinilega margir sem vilja hlægja að fullum köllum sem brjóta lög í vinnuferð a vegum þingsins. Ég setti út á alhæfingu sem ég var ekki til í að sitja undir. Í stað þess að viðurkenna að alhæfing ætti kannski ekki rétt á sér, hljópstu í vörn. Og hér erum við nú.“
„Sagan um bjálkann og flísina er meðal þess sem kemur upp í hugann“
Björn, sem var eitt sinn flokksfélagi Ástu Lóu, spurði hana hversu oft hún hafi þá krafið hann svara:
„Sex sinnum frá 1. - 3. maí. Þú sást ekki ástæðu til að virða mig svars. Fyrst hélt ég að þú hefðir bara ekki verið í aðstöðu til og svo gleymt því. Svo ég gerði aðra tilraun nokkrum klst. síðar og svo fjórum sinnum í viðbót a næstu tveimur dögum. Þögn þín sagði allt sem segja þurfti um að þú varst ekki með nein rök fyrir fullyrðingum þínum þá - frekar en nú. En þá voru þær samt mun alvarlegri,“ segir Ásta Lóa. Hún tekur ekki fram hvað Björn á að hafa sagt á sínum tíma en á tímabilinu sem hún vísar til birti Björn færslu um mýmörg vonbrigði með ríkisstjórnina og sagði að Flokkur fólksins talaði fyrir kjörum hinna bágstöddustu en flest hneykslismálin snerust um ásælni þingmannanna í pening fyrir sig sjálfa, þess vegna væri flokkurinn að hrynja í skoðanakönnunum.
Ásta Lóa bætir við:
„En er þetta í alvöru það sem þú tekur úr þessu öllu saman? Að ég var ekki tilbúin að sleppa þér svo léttilega og gekk á eftir svari? Sagan um bjálkann og flísina er meðal þess sem kemur upp í hugann.“
Björn svaraði henni svo: „Uppsafnað hvarflar að manni að mörk þess sem er við hæfi séu stundum svolítið óljós. Hvers vegna þú sendir sama manni sex sinnum sömu einkaskilaboð ef mér algjörlega óskiljanlegt og ég botna ekkert í þér að teygja svona lopann. Ég mæli með að við látum gott heita. En svo aftur sé vikið að upphafinu: Brandari deyr um leið og þú krefst þess að hann verði útskýrður.“