Fyrir rúmum þremur áratugum síðan gróf Viðar Jökull Björnsson flugvallastjóri á Reykjavíkurflugvelli, þá barn að aldri, mikinn peningafjársjóð í jörðu í Heiðmörk með föður sínum Birni Olsen. Nú þegar Viðar ætlaði að finna fjársjóðinn var landslagið gjörbreytt og ómögulegt að finna hann. En fyrir ótrúlega tilviljun var annar maður, Guðmundur Bjarki Brynjólfsson, á vappi á svipuðum slóðum með málmleitartæki. Hann fann kistuna og hafði samband við Viðar.
„Hvernig svo sem maður vill túlka það og hverju maður trúir,“ segir Viðar aðspurður um hvort þarna hafi örlögin verið að verki eða hvort að þetta hafi einfaldlega verið tilviljun.
„Mér fannst það svolítið skrýtin staðreynd að ég hafi ekki verið sá sem sótti hann. En svo þegar ég fékk að heyra nánari lýsingar frá Guðmundi þá varð ég bara glaður fyrir hans hönd og að hann skildi hafa börnin sín tvö með sér þarna,“ segir Viðar.
Fjársjóður á byggingasvæðinu
Söguna hafði Viðar reifað í færslu á samfélagsmiðlum. En hana má rekja til ársins 1994 þegar faðir hans var að byggja einbýlishús í Hæðunum í Garðabæ. Viðar var þá 13 ára og ímyndunaraflið fékk að leika lausum hala á byggingarsvæðinu. Þar var alltaf hægt að smíða eitthvað eða bralla.
Á þessum stað fann Viðar á bilinu 10 til 15 sparibauka, allir í laginu eins og apar. Þeir voru troðfullir af klinki og stöku seðill líka. Fyrst hélt Viðar að um væri að ræða mjög verðmætan fjársjóð en þegar að var gáð kom í ljós að flestar krónurnar voru úreltar, frá því fyrir myntbreytingu árið 1981.
Feðgarnir veltu fyrir sér hvað þeir ættu að gera við fjársjóðinn og féllust loks á það að setja hann í fjársjóðskistu og grafa hann. Björn dró fram verkfærakistil og innihaldi sparibaukanna var þar sturtað ofan í, ásamt bréfi frá Viðari. Settur var lás á kistuna og haldið út í Heiðmörk til að grafa hana.
23. október 1994
Upphaflega stóð til að útbúa fjársjóðskort og að Viðar myndi fara þangað á fullorðinsaldri og grafa fjársjóðinn upp. Bréfið var öryggisatriði, ef einhver annar myndi finna fjársjóðinn á undan þeim.
Sunnudagsmorguninn 23. október árið 1994 grófu feðgarnir djúpa holu fyrir innan jaðar á þykkri trjálínu. Björn sagði syninum að taka minnispunkta um svæðið, raflínur og hraundranga. Tók Viðar einnig ljósmyndir á einnota myndavélar. En eftir þetta var lítið um þetta rætt.
Í vor varð faðir Viðars áttræður og eitt kvöldið fór hann með myndaalbúm til hans að fletta í gegnum. Þar fundu þeir meðal annars myndirnar sem Viðar hafði tekið í Heiðmörk. Fór hann að verða forvitinn um fjársjóðinn og hvort hann gæti munað hvar hann fór niður.
Ótrúleg tilviljun
Þann 12. september fór Viðar með yngsta syninum í Heiðmörk en ljóst var að landslagið hafði breyst mikið á þessum rúmu þremur áratugum. Hugsaði hann með sér: „Jæja – ég finn kistuna líklega ekki með börnunum mínum, en mögulega með barnabörnunum þegar öflug tæki og tól verða orðin ódýrari“.
En daginn eftir fékk Viðar skilaboð á Facebook frá ókkunngum manni, Guðmundi Bjarka Brynjólfssyni, ungum heimilisföður úr Hafnarfirði, sem hafði fundið fjársjóðinn með málmleitartæki. Hélt hann fyrst að hann hefði fundið þýfi úr gömlu bankaráni en kistan var við það að molna eftir öll árin í jörðinni.
„Mér fannst það svolítið skrýtin staðreynd að ég hai ekki verið sá sem sótti hann. En svo þegar ég fékk að heyra nánari lýsingar frá Guðmundi þá varð ég bara glaður fyrir hans hönd og að hann skildi hafa börnin sín tvö með sér þarna,“ segir Viðar.
Gamli maðurinn áhugasamur
Hann segist ekki vita hversu mikið þetta sé í krónum talið en góssinu hafi verið hellt í plastbala og þetta sé mikið.
„Ég lyfti þessum plastbala. Þetta var meira en 20 kíló,“ segir Viðar.
Hann segir líka að Björn faðir hans sé mjög áhugasamur um þetta.
„Hann er spenntur og áhugasamur. Honum finnst þetta skemmtileg saga og spyr hvert framhaldið verður,“ segir Viðar en það er ekki búið að ákveða hvað verður um góssið. „Það á eftir að koma í ljós hvað verður um innihaldið. Kannski heldur sagan áfram.“
Fólk mætti bralla meira
Viðar tekur undir orð blaðamanns um að það sé einhvers konar gamaldags ævintýraljómi yfir þessari sögu. Ævintýri sem kannski ekki allt of mörg börn nú til dags fái að upplifa.
„Það mætti bralla meira. Eins og ein skrifaði í kommentakerfið hjá mér, gott bras er vanmetið,“ segir Viðar. Ekki er ólíklegt að hann grafi annan fjársjóð með sínum börnum. „Það er allavega beiðni um það á mínu heimili. Hvort það verður fjársjóður af þessum toga eða einhverjum öðrum,“ segir hann.