Hörð umræða geisar um einka- og fjarþjálfarann Viktor Snæ Oliversson hjá VIKFIT í FB-hópnum Mæðratips vegna framkomu hans í garð 14 ára unglings sem leitaði til hans um heilsuráð. Móðir drengsins hefur birt skjáskot af samskiptunum og segir: „Ég á 14 ára son sem er að byrja að feta sín fyrstu spor í ræktinni. Hann hefur áhuga á hollu mataræði og vill læra. Hann vogaði sér að spyrja Viktor Snæ (VIKFIT á Instagram) ráða sem hann hefði betur sleppt. Vildi bara vara við þessum dóna.“
Í skjáskotunum sést Viktor m.a. spyrja drenginn hvort hann sé að grínast og hvort þetta sé gerviaðgangur. „Ertu að senda á mig kl. hálf 11 á laugardagskvöldi að það sé „sku“ erfitt að elda útaf þú ert í skóla? Viltu vorkunn eða af hverju ertu að segja þetta við mig?“
Unglingurinn spyr þá Viktor hvort hann svari öllum svona sem leiti ráða hjá honum. Viktor spyr hvort þetta sé grínaðgangur og ef ekki þá þurfi hann virkilega að herða sig upp. Unglingurinn biður hann þá um að afsaka ónæðið og Viktor segir þá:
„Æi guð, þegiðu. Þú ert eins og lítið barn. Láttu mig vera.“
Sem vænta má hefur færslan vakið hörð viðbrögð í FB-hópnum en Viktor Snæ er þekktur í líkamsræktarbransanum og hefur m.a. vakið athygli fyrir opinskáa umfjöllun um notkun peptíða og stera (sjá hér). Hann hefur einnig vakið athygli og aðdáun fyrir skrautleg húðflúr.
Bað drenginn og móður hans afsökunar
Viktor Snær brást auðmjúklega við fyrirspurn DV um málið. Hann segist ekki hafa gert sér grein fyrir því að hann hafi verið að spjalla við 14 ára ungling og hafi hann nú beðið drenginn og móður hans afsökunar. Hann segir hins vegar að það vanti ákveðið samhengi í umfjöllunum um málið á Mæratips en það afsaki þó ekki framkom hans.
„Úff, já ég sá þetta og sendi honum afsökunarbeiðni, ég vissi ekki að ég væri að tala við krakka og það vantar aðeins samhengi í þetta,“ segir hann og ítrekar að hann gangist við mistökum sínum:
„Maður er ekki bara einhver og ég þarf klárlega að passa mig hvað og hvernig ég tala. Þetta er ekki cool, mín skita og ég owna hana en passa að þetta gerist ekki aftur og lét strákinn og mömmuna vita að þetta væri á mér.“
Óafsakanlegt
Viktor Snær sýndi DV gögn sem sýna að spjall hans og unglingsins hafði staðið yfir í dálítinn tíma áður en koma að hinum harðlega gagnrýndu ummælum hans í garð unglingsins. Hann segir að honum hafi fundist þetta „fyndið í mómentinu“ en átti sig á því að hann geti ekki komið svona fram.
„Margir 20 ára strákar hefðu gott að því að heyra að þeir þurfi að kveikja á helluborðinu og hætta þessu væli, en svo eru ekki allir sem myndu vilja heyra það. En 14 ára er náttúrulega bara barn og hefur ekki skilning,“ segir hann en bendir á að hann hafi veitt unglingnum ráð áður en spjallið tók þessa óæskilegu stefnu. „Hann sendi ekki bara „hæ“ og fékk „þegiðu“.“
Hann ítrekar jafnframt afsökunarbeiðni sína og segist ætla að læra af þessum mistökum.
„Samhengið er kannski bara að ég var í stuði og mér fannst þetta fyndið í momentinu, svo varð þetta þreytt og ég hélt samt áfram að svara. Þetta er bara einhver gaur að biðja mig um ráð, ég gef þau og hann segist ekki geta fylgt þeim,“ segir Viktor Snær og endurtekur að ekki sé hægt að afsaka framkomu hans:
„Ég get ekkert afsakað mig, þetta er dónalegt og óþarft.“