Fréttir

Stofnandi Stöðvar 2 ósáttur við 40 ára afmælisþáttinn – „Vorum alveg ofsalega reið mörg hérna“

Mynd

Fjölmiðlafyrirtækið Sýn hefur undanfarið minnst þess að 40 eru liðin frá stofnun sjónvarpsstöðvarinnar Stöð 2. Hámarki náði upprifjunin með 40 ára afmælisþætti á Sýn þann 9. október. Ekki eru þó allir sáttir við afmælisþáttinn, þar á meðal einn stofnenda Stöðvar 2, Hans Kristján Árnason. Hann segir meira hafa farið fyrir fíflalátum en fróðleik í þættinum. 

„Sko, það er búið að auglýsa þetta í mjög lengi, þennan þátt, á Sýn, og að það verði þarna þessi svaka þáttur á 40 ára afmæli Stöðvar 2, 9. október og þannig að við vorum allir mjög spenntir að sjá hvernig þetta lukkaðist. Og svo þegar þátturinn kemur þá er bara ekkert um þetta. Það er bara svona fimmaurabrandarar og ekki neitt. Og ég held að það hafi verið minnst einu sinni á eitthvað á þetta afmæli. En aðallega var þetta bara lágkúrulegur kjaftagangsþáttur með fimmaurabröndurum og ofboðslega lágt risi á þessu,“ segir Hans Kristján í samtali við DV. 

Þáttinn má sjá hér. 

Aðspurður segir Hans að ekki hafi verið rætt við stofnendur stöðvarinnar í þættinum en almennt hafi þáttinn skort metnað: 

„Þetta er svo metnaðarlaust. Já, þetta er svo mikil breyting frá því sem var áður hérna, það er enginn kúltúr eða metnaður. Þetta er bara bla, bla, bla. Við erum ofsalega reið mörg hérna.“

Hans Kristján tjáði sig um þáttinn á Facebook-síðu sinni: 

„Ég hef sjaldan þurft að horfa á aumari þátt en SÝN sendi út í gærkvöld í opinni dagskrá á 40 ára afmæli Stöðvar 2. Hvaða plebbar ráða þar ríkjum?“

Nokkrar umræður eru undir færslunni, skoðanir skiptar, en meðal annars segir Bubbi Morthens: „Þetta var dálítið skrýtið.“