Frumvarp ríkisstjórnarinnar um leigubremsu hefur vakið miklar deilur og seðlabankastjóri sagði áformin vera heimskuleg. Stefán Ólafsson, hagfræðiprófessor emeritus og sérfræðingur hjá Eflingu, fer yfir málið í aðsendri grein í Heimildinni en hann segir rangfærslur og misskilning í gangi um leigubremsu, t.d. að allar hækkanir á leigu verið bannaðar:
„Skiljanlega hafa sumir talið að allar hækkanir á leigu verði bannaðar, fyrst frumvarpið er kallað „leigubremsa“. En svo er ekki. Einungis er um að ræða hömlur á hækkun leigu, bæði innan árs og árlega.
Hámark er sett á leyfðar árlegar hækkanir og við upphaf og endurnýjun leigusamninga: hækkanir mega ekki verða meiri en hækkun vísitölu neysluverðs á tímabilinu (sem má ekki vera styttra en 12 mánuðir frá síðustu hækkun). Þó eru áfram heimildir fyrir frekari hækkun ef endurbætur eru gerðar eða rekstrarkostnaður hækkar.
Um er að ræða hóflegar hömlur, í takti við það sem víða tíðkast í grannríkjunum.“
Hann bendir á að leiga hafi hækkað langt umfram almennt verðlag síðustu 10-15 ár og það sé vandi sem þurfi að leysa:
„Markmið frumvarps ríkisstjórnarinnar er að leiga hækki ekki meira en vísitala neysluvara (VNV). Ef það næst þá mun leigan ekki hækka umfram verðlagsvísitöluna eins og gerðist á síðasta áratug. Það þýðir mun minni hækkanir á leigu í framhaldinu.“
Stefán segir að leiga hækki verðbólgustig og húsnæðisliðurinn í verðlagsvísitölunni, sem byggi helst á húsaleiguverði, hafi oftast verið stærsti þáttur í verðbólgu undanfarin ár:
„Með hinu nýja frumvarpi er dregið úr þessum áhrifum leigu á verðbólguna. Það er mjög verðmætt og mikilvægt framfaraskref í baráttunni við verðbólguna, auk þess sem það bætir hag leigjenda til lengri tíma.“
Stefán segir einnig að frumvarpinu sé ætlað að draga úr víxlverkun leigu og verðlagsvísitölu en greinina má lesa hér.