Fréttir

Ósjálfbjarga vegna ölvunar

Mynd
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu.

Einn maður var handtekinn fyrir ofbeldi í heimahúsi í dag, í umdæmi lögreglustöðvar 3, sem er Breiðholt og Kópavogur. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu en málið er í rannsókn. 

Í umdæmi lögreglustöðvar 1 var tilkynnt um víðáttuölvaðan mann sem gat ekki valdið sér og svaf ölvunarsvefni utandyra. Komið var með hann á lögreglustöð og þar fundust upplýsingar um manninn og hvar hann ætti heima. Kom í ljós að hann bjó einungis tveimur húsum frá þar sem hann fannst og var honum því ekið aftur heim þar sem fjölskyldumeðlimur tók á móti honum.

Tilkynnt var um mikinn hávaða og læti koma frá sameign í fjölbýlishúsi í hverfi 108. Lögregla skarst í leikinn og einum var vísað í burtu.

Einn var handtekinn í verslun eftir tilkynningu um ofbeldisfulla hegðun. Er hann laus frá lögreglu eftir samtal á lögreglustöðinni.