Fréttir

Systir Magnúsar lést úr anorexíu: „Mér fannst ég aldrei hafa fullan styrk eftir að hún dó“

Mynd
Magnús Ver Magnússon. Mynd: Fullorðins.

„Þetta var kona sem féll aldrei verk úr hendi, var í þremur vinnum og kom heim í hádeginu og tók til. En hún var með anorexíu,“ 

segir Magnús Ver Magnússon um systur sína í viðtali við Kiddu Svarfdal í Fullorðins. 

Magnús segist hafa átt sérstakt samband við systur sína, en hún lést vegna anorexíu langt fyrir aldur fram. „Við vorum einhvern veginn tengd. Ég var úti í Hollandi og fékk þá þau skilaboð að hún væri fallin frá. Hjartað gafst upp. Mér fannst ég aldrei hafa fullan styrk eftir að hún dó,“ segir Magnús, sem hafði þá stuttu áður hampað titli sem sterkasti maður heims í fjórða sinn. Magnú hefur einnig unnið fleiri titla víða um heim.

  

Hann byrjaði að lyfta fyrir tvítugt fyrir austan og segir okkur frá því hvernig það kom til að hann endaði í kraftlyftingum. Magnús fór fljótt suður og var áður en hann vissi af farinn að lyfta í Engihjalla með Jóni Páli Sigmarssyni, Hjalta Úrsusi og fleirum. Hann fékk svo fljótlega boð um að taka þátt í fyrsta Sterkasti maður Íslands þar sem hann endaði í þriðja sæti, en Jón Páll varð í 1. sæti. 

Magnús segist hafa verið að vinna að því að minnka sig seinustu misseri og vera eins heilsuhraustur og hægt er miðað við aldur og fyrri störf.