Fréttir

Biobú tekur mjólkurverðshækkunina á sig

Mynd
Helgi Rafn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Biobús.

Biobú hefur ákveðið að hækka ekki verð á vörum sínum þrátt fyrir nýlega hækkun á innkaupsverði mjólkur. Innkaupsverð á mjólk til Biobús hækkaði um 1,4% í september. Fyrirtækið hefur ákveðið að taka hækkunina á sig að svo stöddu og halda verði til viðskiptavina óbreyttu, eins og segir í fréttatilkynningu.

„Við höfum miklar áhyggjur af áframhaldandi verðhækkunum í samfélaginu og teljum mikilvægt að fyrirtæki leggi sitt af mörkum til að halda aftur af verðbólgu þar sem þess er kostur. Þess vegna ætlum við ekki að bregðast við þessari hækkun með því að hækka okkar verð,“ segir Helgi Rafn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Biobús.

Biobú greiðir hærra verð fyrir lífræna mjólk en hefðbundna mjólk, enda fylgja lífrænni framleiðslu strangari kröfur og aukinn kostnaður fyrir bændur. Fyrirtækið leggur áherslu á að tryggja íslenskum lífrænum kúabændum áfram sanngjarnt verð fyrir þeirra framleiðslu.

„Við viljum standa með bændunum okkar en um leið gera það sem við getum til að halda aftur af verðhækkunum til neytenda. Það er auðvitað ekki hægt að taka allar kostnaðarhækkanir á sig endalaust, en við teljum rétt að gera það í þessu tilfelli,“ segir Helgi.

Biobú framleiðir íslenskar lífrænar mjólkurvörur úr mjólk frá fjórum lífrænum kúabúum. Fyrirtækið hefur á undanförnum árum lagt áherslu á að efla íslenska lífræna framleiðslu og fjölga þeim vörum sem neytendum standa til boða.