Fréttir

Yngri drengur sagður hafa orðið fyrir aðkasti í Vesturbæjarlaug – Vitni furðar sig á viðbrögðum fullorðinna

Mynd
Vesturbæjarlaugin.

Frásögn manns af atviki sem átti sér stað í Vesturbæjarlaug í Reykjavík í gær hefur vakið töluverða athygli á Facebook-síðu íbúa í Vesturbænum.

Þar er greint frá því að tveir unglingspiltar hafi lagt yngri dreng í einelti með þeim afleiðingum að hann hljóp grátandi inn í búningsklefa. Vitni að atvikinu segist undrandi á því að fullorðið fólk sem var á staðnum hafi ekki gripið inn í.

Í færslu á Facebook lýsir vitnið því sem það sá í sundlauginni. Yngri drengurinn hafi verið um 11 til 12 ára gamall en þeir eldri á aldrinum 14 til 16 ára.

„Í fyrstu hélt ég að þetta væri bara einhver stríðni á milli krakka, en svo sá ég yngri drenginn hlaupa grátandi frá sturtunum í átt að búningsklefanum, greinilega í miklu uppnámi.“

Annar drengur, um tíu ára gamall, hafi reynt að hugga þann yngri og hrópað að þeir ætluðu að hringja á lögregluna. Það hafi þó ekki stöðvað eldri drengina sem héldu áfram að gera grín að honum.

Furðar sig á aðgerðaleysi fullorðinna

Vitnið segist að lokum hafa gripið inn í ásamt öðrum fullorðnum einstaklingi. Þeir hafi huggað drenginn og gert starfsfólki sundlaugarinnar viðvart.

Annar eldri drengurinn hafi þá hlaupið á brott en hinn farið að rífast við þá og starfsfólkið. Hann hafi neitað að hafa gert nokkuð af sér og krafist þess að þau sönnuðu ásakanirnar.

Það sem situr þó einna þyngst í vitninu eru viðbrögð annarra fullorðinna sem voru á staðnum.

„En það sem ég á virkilega erfitt með að skilja er þetta: Búningsklefinn var fullur af fullorðnu fólki, en enginn virtist grípa inn í á meðan verið var að leggja þennan dreng í einelti.“

Vitnið spyr hvernig standi á því að fullorðið fólk horfi aðgerðalaust á þegar barn sé hrætt, gráti og líði augljóslega illa.

„Við verðum að hætta að líta undan. Við fullorðna fólkið þurfum að taka ábyrgð,“ segir í lok færslunnar.

Foreldrar ræði við börn sín

Færslan hefur sem fyrr segir vakið töluverð viðbrögð og hafa fjölmargir hrósað vitninu fyrir að hafa komið drengnum til hjálpar.

Í athugasemdum við færsluna taka margir undir gagnrýnina á aðgerðaleysi fullorðinna og segja mikilvægt að fólk láti sig varða þegar börn verða fyrir áreitni eða einelti.

„Því miður finnst mér ég alltof oft sjá að fullorðið fólk velur að skipta sér ekki af eða horfa í aðra átt þegar aðstæður sem þessar koma upp,“ skrifar ein kona.

Annar segir að samfélagið verði að taka harðar á einelti meðal ungmenna og gagnrýnir það sem hann kallar gerendameðvirkni.

Fleiri leggja áherslu á að foreldrar ræði við börn sín um hegðun gagnvart öðrum og að fullorðnir sýni gott fordæmi með því að grípa inn í þegar þeir verða vitni að slíku.

„Samfélagið er sterkara þegar við horfum í kringum okkur og hugsum um náungann,“ segir í einni athugasemdinni.