Fréttir

Viðtal við forstjóra Fotoware: Það er hægt að viðhalda trausti á fréttaljósmyndum

Mynd
Anne Gretland, forstjóri Fotoware. Aðsend mynd.

Á næsta ári fagnar heimsins elsta ljósmynd 200 ára afmæli sínu. Með tilkomu snjallsímanna höfum við lifað með þeirri möntru að það gerðist ekki nema það sé mynd. Núna erum við að fara hratt inn í tíma þar sem það verður ekki hægt að sjá hvort mynd sé raunveruleg eða sköpunarverk gervigreindar. 

Það gæti haft vofveiflegar afleiðingar fyrir þá sem reiða sig á að myndir séu af einhverju sem gerðist í alvörunni, eins og fjölmiðlar og lögregla. Grefur það einnig undan trausti þar sem auðvelt er fyrir alla að sníða raunveruleikann að sinni heimsmynd með því að segja að raunverulegar ljósmyndir séu bara gervigreind, þegar eru til fjölmörg dæmi þess á samfélagsmiðlum. Í fyrra var gerð rannsókn þar sem þátttakendur áttu að flokka gervigreindarmyndir frá ljósmyndum en aðeins 0,1% þeirra tókst það í öllum tilfellum. Unnið er að því að koma í veg fyrir að ljósmyndir verði marklausar með sérstökum staðli sem fjölmiðlar og aðrir geta notað til að ganga úr skugga um að myndin hafi verið tekin með myndavél. 

Mynd
Fréttaljósmyndir hafa margoft skipt sköpum og oft hafa áhrifamiklar myndir náð hringinn í kringum hnöttinn. Má til dæmis nefna ljósmynd af hinum tveggja ára Alan Kurdi sem drukknaði fyrir utan strendur Grikklands árið 2015. Mynd/Getty

Það er enginn einn fjölmiðill eða ljósmyndabanki sem getur tekið þetta verkefni að sér. Í dag eru um fimm þúsund meðlimir í Content Authenticity Initiative, skammstafað CAI, sem stofnað var af Adobe árið 2023. CAI gengur út á að rafræn ljósmynd er eyrnamerkt með C2PA staðli inni í myndavélinni þannig að notandi getur séð hvenær skráin var búin til og hvort búið sé að eiga við hana, svokölluð lýsigögn eða skilríki. Ljósmyndir fara oft í gegnum margar hendur áður en hún endar hjá fjölmiðli og er því mikilvægt að enginn milliliður skemmi gögnin á bakvið myndina. Til að koma í veg fyrir það er notast við stafrænt kerfi sem kallast DAM. Er nú samfélagsmiðillinn LinkedIn byrjaður að styðja þennan staðal og er búist við að fleiri samfélagsmiðlar fylgi í kjölfarið. 

Ljósmyndir með traustan uppruna hafi meira gildi en nokkru sinni fyrr

Norska hugbúnaðarfyrirtækið Fotoware hóf að styðja C2PA staðalinn í september. Fyrirtækið hefur verið starfandi frá 1994 og unnið með ýmsum fjölmiðlum, þar á meðal Economist og Sky. Fotoware starfaði einnig eitt sinn með DV við varðveislu og skipulag fréttaljósmynda. 

Anne Gretland, forstjóri Fotoware, segir að miðað við innsýn hennar í þennan heim skynji hún að upplýsingaflóðið, sem neytendur verða fyrir, verði enn meira með tilkomu gervigreindar og að áhyggjur af áreiðanleika, uppruna og trausti fari vaxandi.

„Mín skoðun er því sú að eftir því sem upplýsingamagnið eykst verði mikilvægara en nokkru sinni fyrr að geta treyst því efni sem við sjáum. Við þurfum að geta treyst því sem blasir við okkur svo við vitum hvað er satt og getum greint sannleikann frá röngum eða villandi upplýsingum,“ segir hún.

„Sumir óttast að ljósmyndir – og myndbönd – muni missa verðgildi sitt, en ég tel að það sé aðeins að hluta til rétt. Annars vegar erum við að upplifa sprengingu í magni stafræns efnis, sem líklegt er að dragi úr verðmæti stafrænna miðlunarskráa almennt. Sú þróun hefur þó fyrst og fremst áhrif á ákveðnar tegundir efnis.

Hins vegar hefur raunverulegt ljósmyndaefni, sem kemur frá traustum uppruna og á sér skjalfesta og rekjanlega sögu, meira gildi en nokkru sinni fyrr.

Ég tel því að framtíð ljósmyndunar felist í skýrum aðskilnaði á milli annars vegar ósvikins og trausts efnis og hins vegar efnis sem ekki er hægt að sannreyna. Hið fyrrnefnda hefur raunverulegt gildi en hið síðarnefnda verður í auknum mæli litið á sem hávaða í upplýsingaflóðinu.“

Markmiðið að enginn geti hrópað falsfréttir

Anne segir að það verði alls ekki svo að fréttaljósmyndarar verði óþarfir í framtíðinni. „Nú, meira en nokkru sinni fyrr, þarf fólk – og vill – fylgjast með því sem gerist í heiminum í kringum það. Ljósmyndir gegna mikilvægu hlutverki í því. Neytendur þurfa hins vegar að geta treyst því að það sem þeir sjá endurspegli raunveruleikann.

Við gerum því ráð fyrir að fréttamiðlar og myndveitur þurfi að laga sig að þessari kröfu. Ein leið til þess er að veita notendum upplýsingar um uppruna þeirra mynda sem þeir sjá á netinu, þannig að hægt sé að rekja allan lífsferil myndarinnar.

Ef fjölmiðlar aðlaga verklag sitt og tækni þannig að hægt sé að veita slíkar upplýsingar með ljósmyndunum tel ég að fréttaljósmyndun verði jafn mikilvæg í framtíðinni og hún er nú – ef ekki enn mikilvægari.

Mikilvægt er að hafa í huga að þegar fólk les fréttir og sér ljósmyndir gerir það ráð fyrir að efnið sé satt. Það eru til aðilar, af ýmsum toga, sem vilja fá okkur til að trúa því að fölsuð eða röng upplýsingagjöf sé sannleikurinn.“

Mynd
Dæmi um mynd þar sem gervigreindin var beðin um að breyta litnum á peysunni. Aðsend mynd.

FotoWare gerðist aðili að CAI árið 2023, Anne segir að ástæðan sé að gera viðskiptavinum þeirra í frétta- og fjölmiðlageiranum kleift að sanna að þær myndir sem þeir hafa tekið sýni raunveruleikann. 

„Við viljum að lögregla og önnur löggæsluyfirvöld geti sýnt fram á að ljósmyndir af vettvangi glæpa og annað myndefni þeirra sé ósvikið og að heimildir um menningararf séu varðveittar í upprunalegri mynd.

Markmiðið er að enginn geti einfaldlega hrópað „falsfréttir“ þegar honum líkar ekki við raunveruleikann eða sagt „þetta gerðist aldrei“ um ákveðna hluta sögunnar, menningararfinn eða myndir frá stríði eða vettvangi glæpa.“

Traustið mjög brothætt

Stefnum við í framtíð þar sem fréttastofur, lögregla og aðrir aðilar eiga í raun engra annarra kosta völ en að innleiða svona staðal?

„Þegar við sjáum hversu langt gervigreindartækni nútímans er komin, ekki síst þegar kemur að breytingum á ljósmyndum, virðist mér ljóst að stofnanir og fyrirtæki sem þurfa að njóta trausts verði að laga sig að C2PA-staðlinum til að viðhalda trausti á því sem er satt og rétt.

Þetta er sérstaklega mikilvægt þegar stofnanir reiða sig á efni sem notendur eða almenningur búa til, en það á oft við bæði um lögreglu og fjölmiðla.

Við lifum á tímum þar sem traust er mjög brothætt og miklar líkur eru á að sönnunargögn eða fréttir verði dregin í efa. Þess vegna skiptir höfuðmáli að ábyrgir aðilar geti, þegar þess er óskað, sýnt fram á uppruna og feril efnis.

Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að Content Authenticity Initiative varð til og að mínu mati sýnir það skýrt hvað þarf að vernda. Sannleikurinn er orðinn eitthvað sem þarf að vernda. Og við þurfum öll að leggja okkar af mörkum til þess.“

Mynd
Dæmi um hvernig skilríkin virka. Aðsend mynd.

Það er ekki hlaupið að því að sannreyna hluti í dag þar sem dæmi eru um fölsuð lýsigögn fyrir utan að gervigreindin heldur áfram að þróast á miklum hraða. Fyrir nokkrum misserum var auðvelt að sjá með beru auga hvort myndin var búin til með gervigreind eða ekki en nú bendir allt til þess að í náinni framtíð verði engin leið að greina hvort mynd sé raunveruleg eða ekki með augunum einum. Anne segir að stuðningur við C2PA staðal og innleiðing verkfæra til að sannreyna efni sé ekki óskeikul aðferð til að staðfesta hvort ljósmynd sé raunveruleg, þess í stað staðfestir staðallinn uppruna myndarinnar og ferilinn sem hún hefur gengið í gegnum, til dæmis hvort búið sé að klippa af henni. 

Nefnir hún sem dæmi ljósmynd sem fjölmiðill fær senda. Með þessum staðli er hægt að skoða lýsigögnin í skránni. Lýsigögnin sýna að búið er að breyta myndinni þannig að bakgrunnurinn var gerður óskýr. Nefnir hún einnig dæmi ef fjölmiðill fær senda ljósmynd af Austurvelli sem sýni mikinn fjölda mótmælenda, með því að skoða skrána væri hægt að sjá hvort búið sé að ýkja fjöldann. 

Mynd
Anne segir að það þurfi að beita tækninni markvisst til lengri tíma til að endurbyggja traust. Aðsend mynd.

Getum við endurheimt traust á ljósmyndum?

„Ég tel að við getum það, en það krefst jafnframt mikillar skuldbindingar bæði frá upplýsingatæknigeiranum og fjölmiðlum. Innleiðing stuðnings við C2PA í öllu vinnuflæði stafræns efnis er góður staður til að byrja, en fyrirtæki og stofnanir þurfa einnig að nýta tæknina með virkum hætti til að koma í veg fyrir mistök sem gætu grafið undan trausti.

Traust byggist upp á löngum tíma en getur horfið á örfáum sekúndum. Þess vegna er nauðsynlegt að fyrirtæki og stofnanir forðist alvarleg mistök, til dæmis að birta falsað eða ósvikið efni. Tæknin getur hjálpað með því að gera starfsfólki kleift að rekja uppruna og breytingasögu mynda. Til að endurbyggja traust þarf hins vegar að beita slíkri tækni markvisst til lengri tíma og draga þannig úr hættu á mannlegum mistökum.

Þetta getur auðvitað verið krefjandi í hraða nútímans, þar sem dagblöð og netmiðlar eru undir stöðugum þrýstingi um að vera fyrstir með fréttirnar og fyrstir til að birta myndirnar. Þær örfáu sekúndur sem það tekur að sannreyna ljósmynd geta á þeirri stundu virst „sóun á tíma“. Á hinn bóginn getur það haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir orðspor fjölmiðils ef hann birtir mynd sem síðar reynist fölsuð.

Þegar fréttaljósmyndarar hætta stundum lífi sínu til að skrásetja sannleikann um það sem er að gerast berum við, sem þróum og seljum hugbúnað og tæknibúnað, ábyrgð á því að hjálpa til við að vernda, varðveita og sannreyna þann sannleika með þeim lausnum sem við búum til.“