Fréttir

Viðskiptavinir Íslandsbanka varaðir við – Ekki falla í þessa gildru

Mynd
Mynd: Íslandsbanki

Íslandsbanka hafa borist tilkynningar um svikatilraunir þar sem hringt er í viðskiptavini bankans og hringjendur gefa sig út fyrir að starfa hjá bankanum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

„Íslandsbanki varar við þessum símtölum og hvetur viðskiptavini til að samþykkja ekki óvæntar beiðnir um auðkenningu með rafrænum skilríkjum.“

Í tilkynningunni kemur fram að í símtölunum sé því haldið fram að grunsamleg virkni eða innskráning hafi átt sér stað í netbanka viðskiptavinar. Viðkomandi sé í kjölfarið beðinn um að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum.

„Íslandsbanki hvetur viðskiptavini sem fá slík símtöl til að leggja á og hafa samband við bankann í síma 440 4000 ef þeir eru í vafa um hvort símtalið sé raunverulega frá bankanum.“