Fréttir

Vance ekki spenntur fyrir aftökunni í beinni - „Þá ætla ég ekki að horfa“

Mynd
J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna.

J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna er ekki áhugasamur um fyrirhugaða aftöku á Nidal Malik Hasan sem myrti 13 manns í herstöðinni Fort Hood í Texas árið 2009, en Hasan var sjálfur hermaður. Upplýst hefur verið að Hasan verði tekinn af lífi í desember næstkomandi með aftökusveit og að streymt verði beint frá aftökunni. Vance segir hins vegar að það sé ekki öruggt að það verði yfirhöfuð af beina streyminu en segir að verði aftakan sýnd beint muni hann ekki horfa.

Pete Hegseth varnarmálaráðherra greindi í gær frá fyrirætlunum um að streyma frá aftökunni og virtist mjög áhugasamur um það. Hefur þetta uppátæki hlotið töluverða gagnrýni vestanhafs og hafa margir forystumenn Demókrata sagt að beinar útsendingar frá aftökum sé eitthvað sem tíðkist í alræðisríkjum en eigi ekki að líða í Bandaríkjunum.

Vance varaforseti er augljóslega ekki jafn spenntur og varnarmálaráðherrann fyrir beina streyminu frá aftökunni. Hann sagði við fréttamenn fyrr í dag:

„Ég veit ekki alveg hvort það mun eiga sér stað.“

Hann vék síðan að því að í umræðunni um beina streymið mætti ekki gleyma hversu hryllilegan glæp Nidal Malik Hasan hefði framið:

„Að því sögðu ... ég meina ... sjáið til, ef þetta verður á endanum í beinu streymi þá ætla ég ekki að horfa.“

Í fréttum bandarískra fjölmiðla er því velt upp hvort kaþólsk trú Vance skýri þetta viðhorf hans. Varaforsetinn snerist til kaþólskrar trúar árið 2019 en eins og kunnugt er þá er kaþólska kirkjan á móti dauðarefsingum.