Kona á þrítugsaldri fannst látin við lendingu í flugvél í Mexíkó. Farþegar voru byrjaðir að fara úr vélinni þegar það uppgötvaðist að hún var látin.
Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.
Abidai López Solís, 28 ára, fannst látin í sæti sínu í flugvél flugfélagsins Volaris á flugvellinum í Chiapas í suðurhluta Mexíkó á miðvikudag, 7. október. Vélin var að lenda eftir fjögurra tíma flug frá Tijuana í norðurhluta landsins.
Hreyfði sig ekki
Vélin var lent og farþegar byrjaðir að fara úr vélinni þegar einhverjir þeirra áttuðu sig á því að Solís hefði ekki hreyft sig í langan tíma. Þar á meðal ekki eftir að vélin lenti á flugbrautinni. Engan hafði þó grunað að neitt væri að í fluginu sjálfu. Einfaldlega haldið að hún væri sofandi.
Ýtt var við henni en hún hreyfði sig ekki. Þá var umsvifalaust kallað á sjúkraliða sem fundu engin lífsmörk. Var hún úrskurðuð látin á staðnum og lögregla fengin til þess að rannsaka vettvanginn.
Ekki sakamál
Lík hennar var sent í krufningu og réttarmeinafræðingar telja að hún hafi látist úr hjartasjúkdómi. Ekki væri um sakamál að ræða.
Solís var frá Acacoyagua, nærri Chiapas. Hefur lík hennar verið flutt þangað til greftrunar. Hún hafði verið í heimsókn hjá ættingjum í norðrinu.
Engin yfirlýsing hefur komið frá lögreglu eða flugfélaginu vegna málsins.