Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingar, segir að stjórnarandstaðan, og sérstaklega Sjálfstæðisflokkurinn, hafi selt þjóðinni lygi um fríverslunarsamning við Bandaríkin. Hann hvetur fólk til að láta ekki sömu öfl plata sig aftur.
„Til að sannfæra landsmenn um að segja nei við lausn á krónuvandamálinu seldu stjórnarandstaðan, og sérstaklega Sjálfstæðisflokkurinn, þjóðinni lygi um auðveldan fríverslunarsamning við Bandaríkin. Nú hefur utanríkisráðherra Bandaríkjanna tekið þann möguleika, sem var aldrei möguleiki, af dagskrá,“ segir Þórður Snær í grein á vefsvæði sínu.
„Eftir stendur Sjálfstæðisflokkur sem skilur hvorki stefnu þeirra sem hann vill semja við né samfélagið sem hann vill stjórna. Sami flokkur boðar skattalækkanir fyrir þá ríkustu, útsölu almannaeigna og einkavæðingu velferðarinnar, en reynir að stimpla fulltrúa þeirra verst settu sem óstjórntæka. Þetta snýst um hver fær að eiga, hver fær að ráða og hver á að borga,“ segir Þórður Snær. „Þið eigið að bera kostnaðinn af því að aðrir fái enn meira. Ekki láta sömu hagsmunaöfl plata ykkur aftur.“
Vísar hann meðal annars í ræðu Sigurðar Inga Jóhannssonar, fyrrverandi formanns Framsóknarflokksins, frá 20. maí á þessu ári þar sem rætt var um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB. Sagði hann að vestnorrænt efnahagssvæði Íslands, Færeyja og Grænlands og að raunhæft væri að ná fríverslunarsamningi við Bandaríkin. Það myndi taka aðeins eina viku.
Sömu rök hafi Rósa Guðbjartsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins notað gegn Evrópusambandsaðild. Ísland gæti gert fríverslunarsamning við Bandaríkin. Flokkssystir hennar Diljá Mist Einarsdóttir sagðist líka hafa þungar áhyggjur af samskiptum Íslands og Bandaríkjanna. Vinna ætti stöðugt í að gera fríverslunarsamning.
Nei-sinnar lofuðu fríverslunarsamningi
„Á þessum tíma, síðasta sumar, var Áfram Ísland, hræðslubandalag um gamla Ísland, komið á fullt í að ljúga þjóðina fulla af hræðsluáróðri um að aðildarviðræður við Evrópusambandið myndu skila börnunum okkar í erlenda heri, gefa frá okkur yfirráð yfir auðlindum og að sæstrengur yrði sennilega lagður til landsins á mánudeginum eftir atkvæðagreiðsluna ef Já hefði orðið ofan á, til að hirða hér alla umframorku Íslands til eigin nota,“ segir Þórður Snær. „Það er auðvitað nánast tragíkómísk framsetning í ljósi þess að sterkustu hagsmunaöflin á bak við þessa leiksýningu hafa sjálf slegið eign sinni á sömu auðlindir og þau sögðu „okkur“ vera að missa.“
Nei-sinnar hafi haldið þessum meinta fríverslunarsamningi við Bandaríkin á lofti í kosningabaráttunni. Meðal annars Guðmundur Fertram Sigurjónsson og Ólafur Ragnar Grímsson.
Brandarinn hafi haldið áfram
Eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna var haldið áfram með að Ísland ætti að halla sér fastar í faðm Bandaríkjanna. Þann 10. september lögðu sex þingmenn Sjálfstæðisflokks fram þingsályktunartillögu um fríverslunarsvæði Íslands, Noregs, Grænlands, Færeyja, Bretlands, Bandaríkjanna og Kanada.
Sjá einnig:
Þorsteinn Pálsson:Enginn fríverslun í boði hjá Bandaríkjunum -bara spurning um ofurtolla eða himinháa tolla
„Næst á blað voru svo tvíeykið sem stýrir Sjálfstæðisflokknum, Guðrún Hafsteinsdóttir og Jens Garðar Helgason. Þrátt fyrir að hafa eytt hluta af sumrinu í Bandaríkjunum í að hitta forsvarsmenn þarlendra hugveitna sem bera meðal annars ábyrgð á Project 2025-verkefninu þá virðist alþjóðaviðskiptastefna Trump alveg hafa farið fram hjá þeim,“ segir Þórður Snær. Bandaríkin hafi engan áhuga á fríverslunarsamningi við Ísland.
Enginn áhugi
„Svo kom Marco Rubio, utanríkismálaráðherra Bandaríkjanna, í heimsókn til Íslands til að funda með Kristrúnu Frostadóttur og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Á blaðamannafundi eftir þá fundi sagði hann að tími fríverslunarsamninga væri liðinn,“ segir hann.
Samskipti Íslands og Bandaríkjanna snúist um varnar og öryggismál og viðskipti. Sambandið sé mikilvægt og gjöfult.
„En fríverslunarsamningur öflugasta ríkis í heimi var vart möguleiki fyrir tæplega 400 þúsund manna þjóð þegar Bandaríkin voru að gera fríverslunarsamninga. Áhuginn á því hjá stórveldinu var einfaldlega enginn eins og sést á vangetu Sjálfstæðisflokksins til að gera slíkan þegar flokkurinn hefur verið í ríkisstjórn í sirka þrjú af hverjum fjórum árum sem liðin eru frá lýðveldisstofnun,“ segir Þórður Snær. „Að láta utanríkismálastefnu sína hverfast um gerð slíks samnings á sama tíma og Bandaríkjunum er stýrt af manni sem er algjörlega fráhverfur fríverslunarsamningum og hefur frekar verið að slíta slíkum en gera þá, sýnir hversu óábyrgur og óstjórntækur Sjálfstæðisflokkurinn undir stjórn Guðrúnar og Jens Garðars er. Þar fer flokkur sem er einfaldlega ekki hægt að taka alvarlega.“