Fréttir

Þess vegna fór Samkeppniseftirlitið í húsleit hjá Ölgerðinni í morgun

Mynd

Samkeppniseftirlitið framkvæmdi í morgun húsleit í höfuðstöðvum Beru hf., móðurfélagi Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar ehf.

Bera greindi frá málinu í kauphallartilkynningu á tíunda tímanum í morgun. Þar kom fram að húsleitin tengdist ætluðum brotum á 11. grein samkeppnislaga sem bannar misnotkun á markaðsráðandi stöðu.

Af þessu tilefni vill Samkeppniseftirlitið taka fram að það hafi hafið rannsókn á háttsemi Beru hf., dótturfélagsins Ölgerð Egils Skallagrímssonar og öðrum tengdum félögum á drykkjarvörumarkaði.

„Miðar rannsóknin að því að ganga úr skugga um hvort Ölgerðin sé í markaðsráðandi stöðu á viðkomandi mörkuðum og jafnframt hvort fyrirtækið hafi virt bann samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu,“ segir í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins.

Þar segir enn fremur:

„Í þágu rannsóknarinnar taldi Samkeppniseftirlitið nauðsynlegt að framkvæma húsleit í húsakynnum Ölgerðarinnar. Fer húsleitin fram á grundvelli úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur og í samræmi við heimildir Samkeppniseftirlitsins samkvæmt 20. gr. samkeppnislaga.

Tilgangur húsleitarinnar er að afla og tryggja varðveislu gagna sem kunna að hafa þýðingu fyrir rannsókn málsins. Samkeppniseftirlitið áréttar að framkvæmd húsleitar felur ekki í sér niðurstöðu um að brot gegn samkeppnislögum hafi átt sér stað.

Ekki verða veittar frekari upplýsingar um rannsóknina að svo stöddu.“