Fréttir

Skúli Mogensen svarar skrifum Sifjar um baðlón fullum hálsi - „Mér hefur aldrei dottið í hug að kvarta yfir því“

Mynd
Myndin er samsett

Ríkisstjórnin leggur fram í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár að baðlónum og gufuböðum verði gert að greiða hefðbundinn virðisaukaskatt, 24%, frekar en 11%. Tillagan hefur verið harðlega gagnrýnd af forsvarsmönnum baðlóna, Samtökum ferðaþjónustunnar og fleiri hagsmunaðilum ferðaþjónustunnar. Eigendur baðlóna óttast að hækkunin muni leiða til hærra verðs, dragi úr gestafjölda og hafi neikvæð áhrif á samkeppnisstöðu ferðaþjónustunna. Á samfélagsmiðlum og víðar hefur framgöngu ferðaþjónustunnar í málinu verið líkt við tilætlunarsemi, jafnvel frekju. 

Segja má að tvær hliðar umræðunnar birtist nokkuð skýrt í tveimur greinum sem birst hafa í vikunni. Annars vegar í vikulegum pistli Sifjar Sigmarsdóttur hjá Vísi og svo í svargrein athafnamannsins Skúla Mogensen á sama miðli. 

Kornsíróp ferðaþjónustunnar í boði Skúla

Sif Sigmarsdóttir, pistlahöfundur með meiru, telur að þó að íslenska ferðaþjónustan eigi stuðning og velvild landsmanna skilið eigi hún ekki sjálfkrafa tilkall til skattaívilnana, þ.e. að greiða 11% þegar aðrir greiða 24%. Setur hún málið í samhengi við maísrækt í Bandaríkjunum árið 1973, en þá fengu bændur ríkisstuðning og voru hvattir til að rækta eins mikinn maís og pláss leyfði. Þetta leiddi til framleiðsluaukningar langt umfram eftirspurn. Verðið féll niður fyrir framleiðsluverð og aftur greip ríkið inn í til að bæta bændum tapið og þar með höfðu þeir enga hvata til að minnka framleiðsluna. Bandaríkin voru að drukkna úr maís og þannig varð það til að maís var unninn í kornsíróp sem varð svo til þess að Bandaríkjamenn fitnuðu.

Vísar Sif svo til orða Skúla Mogensen, stofnanda sjóbaðanna Í Hvammsvík, sem hefur tilkynnt að sökum fyrirhugaðrar skattahækkunar ætli hann að fresta því að auka umsvif fyrirtækis síns. Sif segir Íslendinga eiga ferðaþjónustunni margt að þakka.

„Ferðaþjónustan á stuðning og velvild landsmanna skilið. Skattaívilnanir á hún hins vegar ekki sjálfkrafa tilkall til.“

Sif segir að ef viðskiptaáætlun Skúla sé svo viðkvæm að hún þoli það ekki að missa af skattaívilnun ríkisins hvað baðlón varðar, jafnvel þó aðrir hlutar starfseminnar á borð við hótel- og veitingarekstur njóti ívilnunar áfram, þá sé vert að spyrja hvort fótur sé fyrir rekstrinum.

„Baðlón spretta nú upp um allar koppagrundir. Er um að ræða sjálfbæran rekstur eða kornsíróp ferðaþjónustunnar?“

Aldrei dottið í hug að kvarta

Skúli hefur nú svarað pistlinum og segir skrif Sifjar að hluta byggja á rangfærslum og rangtúlkunum á staðreyndum. Hann skrifar í svargrein sinni hjá Vísi:

„Ég á reyndar erfitt með að átta mig á tilgangi greinarinnar en tel mig engu að síður knúinn til að leiðrétta nokkur lykilatriði.“

Sif hefði getað lesið viðtöl við Skúla í Morgunblaðinu, erindi hans á ársfundi Samtaka atvinnulífsins eða viðtal við hann hjá Bylgjunni. Hefði hún gert það myndi hún vita að Skúli er að endurskoða tímasetningu fyrirhugaðra framkvæmda vegna óvissu og óstöðugleika bæði hér heima og erlendis.

„Við búum við háa stýrivexti, þráláta verðbólgu, vinnudeilur, hátt eldsneytisverð og hækkandi atvinnuleysi svo eitthvað sé nefnt. Allt þetta gerir stórar langtímafjárfestingar erfiðari. Þegar stjórnvöld hyggjast meira en tvöfalda virðisaukaskatt á baðlón, úr 11% í 24%, með svo skömmum fyrirvara, getur það hæglega orðið dropinn sem fyllir mælinn.“

Einnig telur Skúli skattahækkun við núverandi aðstæður vera mikla skammsýni. Hækkunin muni ekki sjálfkrafa tryggja hærri skatttekjur til lengri tíma. Horfa þurfi á heildarmyndina og áhrif á fjárfestingar, atvinnu- og verðmætasköpun.

Baðlónum hefur á áratug fjölgað úr fjórum í 18 og enn fleiri eru á teikniborðinu. Þetta þýðir milljarða fjárfestingar sem hafa aukið gæði og fjölbreytni ferðaþjónustunnar, skapað störf og styrkt byggðir.

Hefðbundnar sundlaugar séu svo almennt undanþegnar virðisaukaskatti af aðgangseyri og séu að einhverju leyti í samkeppni við baðlón.

„En mér hefur aldrei dottið í hug að kvarta yfir því. Sundlaugarnar gegna mikilvægu samfélagslegu hlutverki. Það er engu að síður eðlilegt að velta því fyrir sér hvers vegna stjórnvöld telji nú rétt að hækka skattlagningu á aðra baðþjónustu svo verulega og í því samhengi ansi langt seilst að líkja gagnrýni minni á skyndilega hækkun virðisaukaskatts í 24% úr 11% við kröfu um ríkisaðstoð við greinina.“

Loks bendir Skúli á að Hvammsvík sé langtímaverkefni og hefur Skúli ekki greitt sér arð úr félaginu heldur haldið áfram að fjárfesta í uppbyggingu.

„Mér finnst því bæði sérkennilegt og sorglegt ef umræðan er komin á það stig að gera lítið úr þeirri uppbyggingu sem frumkvöðlar og fjárfestar hafa staðið fyrir í ferðaþjónustu víðs vegar um landið.

Það er auðvelt að sitja við lyklaborðið og skrifa pistla um hvernig eigi að skattleggja fjárfestingar annarra. Það er allt annað að leggja eigið fé að veði, taka áhættu, byggja eitthvað upp frá grunni og skapa störf og verðmæti fyrir samfélagið.

Að því sögðu, Sif, ertu að sjálfsögðu alltaf velkomin í böðin í Hvammsvík!“