Fréttir

Samkeppniseftirlitið í húsleit hjá móðurfélagi Ölgerðarinnar

Mynd

Samkeppniseftirlitið hefur hafið húsleit hjá Beru hf., móðurfélagi Ölgerðarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar.

Í tilkynningunni segir að eftirlitið hafi tilkynnt félaginu um upphaf máls vegna rannsóknar á ætluðum brotum Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar ehf. á 11. grein samkeppnislaga nr. 44/2005. 

„Ákvæðið leggur bann við hvers konar misnotkun eins eða fleiri fyrirtækja á markaðsráðandi stöðu. Húsleitin er framkvæmd með heimild Héraðsdóms Reykjavíkur og er liður í rannsókn sem á þessu stigi tekur til tímabilsins frá og með árinu 2020 til dagsins í dag. Félagið mun veita upplýsingar um framgang málsins eftir því sem tilefni verður til,“ segir í tilkynningunni.