Fréttir

Læknir segir sjúklinga látna kveljast – „Ekki bara tölur heldur raunverulegar manneskjur“

Mynd

„Yfir hundrað manns bíða nú sárþjáðir eftir því að fá bót meina sinna,“ segir Halldór Skúlason, heila- og taugaskurðlæknir hjá Orkuhúsinu, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Í grein sinni gagnrýnir hann Sjúkratryggingar Íslands harðlega fyrir að takmarka fjölda skurðaðgerða, meðal annars vegna brjóskloss og hryggjarþrengsla. Hann segir aðgerðakvótann langt undir raunverulegri þörf og að afleiðingarnar séu sífellt lengri biðlistar og auknar þjáningar sjúklinga.

Halldór bendir á að þegar Sjúkratryggingar semja við einkafyrirtæki í heilbrigðisþjónustu um ákveðinn fjölda aðgerða sé um leið tekin einhliða ákvörðun um hversu margar aðgerðir verði fjármagnaðar. Hann segir að biðlistar lengist óhjákvæmilega ef fjöldi fjármagnaðra aðgerða tekur ekki mið af raunverulegri þörf.

„Þetta er sú staða sem við stöndum frammi fyrir núna,“ segir Halldór og nefnir aðgerðir vegna brjóskloss og hryggjarþrengsla sem dæmi.

„Miðað við tilvísanir til okkar og fjölda sjúklinga sem þurfa skurðaðgerð þá þyrftum við í Orkuhúsinu að framkvæma á milli 250 og 300 aðgerðir á ári til þess að biðlistar hjá okkur lengist ekki,“ segir hann.

Þrátt fyrir að hafa fengið allar upplýsingar um stöðuna hafi Sjúkratryggingar einungis úthlutað Orkuhúsinu 100 aðgerðum fyrir árið 2026.

„Eins og staðan er í dag eru 114 sjúklingar á biðlista hjá okkur,“ segir hann.

Þurfi að kveljast lengur

Halldór segir að Sjúkratryggingum hafi ítrekað verið bent á vandann og óskað hafi verið eftir fundum og undanþágum, án þess að viðbrögð hafi fengist. Heilbrigðisráðherra og forstjóri Sjúkratrygginga hafi hins vegar nefnt að aðgerðunum ætti að dreifa jafnt yfir árið svo kvótinn klárist ekki.

Halldór segir að það breyti engu um þann fjölda aðgerða sem vantar. Dreifingin verði einungis til þess að sjúklingar þurfi að kveljast lengur.

Hann rifjar upp að málið hafi komið til umræðu á Alþingi á dögunum þegar Diljá Mist Einarsdóttir benti á vandann og óskaði eftir svörum frá heilbrigðisráðherra.

„Heilbrigðisráðherra svaraði því að helmingur aðgerðamagnsins hefði farið til annars þjónustuaðila. Nokkuð sem Sjúkratryggingar hafa ekki enn upplýst okkur í Orkuhúsinu um,“ segir hann í grein sinni.

Slakað á gæðakröfum?

Halldór segir að Orkuhúsið hafi verið eini aðilinn sem uppfyllti gæðakröfur í útboði á hryggjaraðgerðum, meðal annars um notkun aðgerðasmásjár og reynslu skurðlækna. Þrátt fyrir það hafi Sjúkratryggingar í upphafi árs úthlutað öðrum þjónustuaðila sama fjölda aðgerða, þótt sá aðili uppfyllti ekki kröfurnar og notaðist við aðgerðatækni sem krefðist umfangsmeira inngrips og oft innlagnar.

Halldór sakar Sjúkratryggingar um að hafa slakað á eigin gæðakröfum án þess að upplýsa þá aðila sem unnu útboðið. Sjúklingar hafi heldur ekki verið upplýstir um muninn á aðgerðatækni þjónustuaðilanna.

„Raunverulegar manneskjur“

Halldór fagnar því að heilbrigðisráðherra hafi nú boðað fund með Sjúkratryggingum um mögulega fjölgun aðgerða og vonast til að það skili árangri.

Hann minnir á að 114 sjúklingar bíði nú eftir aðgerð hjá Orkuhúsinu og segir marga þeirra glíma við verki sem skerði starfsgetu og daglegt líf. Langvarandi bið geti jafnvel valdið varanlegum skaða.

„Við megum ekki gleyma því að tölur á biðlistum eru ekki bara tölur heldur raunverulegar manneskjur,“ segir Halldór.

Hann bendir á að löng bið eftir skurðaðgerð geti leitt til atvinnumissis og aukins kostnaðar fyrir samfélagið. Brýnt sé að fjölga aðgerðum enda hafi hvorki sjúklingar né samfélagið efni á frekara aðgerðaleysi.