Umboðsmaður alþingis telur ekki tilefni til að halda áfram meðferð kvörtunar sem maður nokkur lagði fram vegna andláts dóttur hans á sjúkrahúsi í ónefndu ríki. Kvartaði faðirinn yfir vinnubrögðum Sjúkratrygginga Íslands og heilbrigðisráðuneytisins í málinu, en það var fyrrnefnda stofnunin sem sendi dóttur mannsins til meðferðar á sjúkrahúsinu. Umboðsmaður hefur hins vegar ákveðið, vegna málsins, að óska eftir upplýsingum frá Ölmu Möller heilbrigðisráðherra og ráðuneyti hennar um þær leiðbeiningar sem sjúklingum og aðstandendum þeirra, hér á landi, eru veittar þegar þeir leita sér heilbrigðisþjónustu erlendis að frumkvæði heilbrigðisstofnana á Íslandi.
Í bréfi umboðsmanns til föðurins segir að kvörtunin hafi verið lögð fram í október 2025 vegna viðbragða heilbrigðisráðuneytisins við aðfinnslum hans í tilefni af stjórnsýslu Sjúkratrygginga Íslands, í tengslum við andlát dóttur hans sem eins og áður segir lést á erlendu sjúkrahúsi, en í hvaða landi það var kemur ekki fram.
Ráðuneytið mun ekki hafa gert athugasemdir við málsmeðferð Sjúkratrygginga í málinu. Óskaði faðirinn sérstaklega eftir því að umboðsmaður kannaði hvort Sjúkratryggingar Íslands hafi fylgt lögum og reglum við val á erlendu sjúkrahúsi og með viðbrögðum sínum eftir atvikið, hvort brotið hafi verið gegn Evrópureglugerð um samræmingu almannatryggingakerfa, hvort upplýsingaskylda gagnvart sjúklingi og aðstandendum hafi verið virt og hvort eftirlit með þjónustu hafi verið nægjanlegt og í samræmi við lög. Þá óskaði hann sömuleiðis eftir því að skoðað yrði hvort bótagreiðslur til hans hafi verið í samræmi við réttindi aðstandenda, hvort þörf væri á að endurskoða reglur á þessu sviði og hvort hugsanlega hafi skapast nýr grunnur fyrir bótarétti.
Ekki fyrsta
Fram kemur í bréfinu að faðirinn hafi áður lagt fram kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna málsins en að í þessari nýjustu kvörtun hafi faðirinn talið að íslensk stjórnvöld hafi brugðist skyldum sínum til að tryggja öryggi og hagsmuni dóttur hans og að upplýsa aðstandendur um áhættu og önnur úrræði þegar henni var vísað til meðferðar á hinu umrædda sjúkrahúsi, þrátt fyrir að yfirvöldum hafi mátt vera kunnugt um hlutfall dauðsfalla sem rekja mætti til læknamistaka í landinu. Þá telji hann eftirliti íslenskra stjórnvalda með þeirri læknisþjónustu sem dóttir hans hafi notið hafa verið ábótavant. Segir umboðsmaður að svo virðist sem að faðirinn óski álits umboðsmanns á því hvort stofnast kunni að hafa til bótaábyrgðar íslenska ríkisins.
Umboðsmaður segir að niðurstaða um bótaábyrgð ríkisins gagnvart föðurnum ráðist meðal annars af sönnun um málsatvik þar sem reynst geti nauðsynlegt að afla ýmissa sönnunargagna, þar á meðal vitnaskýrslna, og meta sönnunargildi þeirra, en slíkt sé ekki á færi embættisins. Um sé að ræða álitamál sem eðlilegt sé að dómstólar leysi úr. Með því hafi umboðsmaður þó enga afstöðu tekið til þess hvort ástæða sé til að bera málið undir dómstóla.
Útförin
Segir enn fremur í bréfi umboðsmanns að samkvæmt gögnum málsins hafi Sjúkratryggingar greitt kostnað við útför dóttur mannsins, að því marki sem að yfirvöld í viðkomandi ríki hafi ekki bætt þann kostnað. Verði ekki séð að fengin hafi verið afstaða Sjúkratrygginga eða úrskurðarnefndar velferðarmála til frekari réttar föðurins á greiðslum frá Sjúkratryggingum vegna andlátsins.
Þar af leiðandi séu ekki forsendur fyrir því að umboðsmaður láti uppi álit sitt á lögmæti ákvarðana stjórnvalda um rétt hans sem aðstandanda til frekari greiðslna. Þá sé það ekki hlutverk umboðsmanns að svara almennum spurningum um tiltekið málefni, svo sem hvort þörf sé á að endurskoða reglur. Umboðsmaður geti þó vakið athygli Alþingis og hlutaðeigandi ráðherra, verði hann þess var að meinbugir séu á gildandi lögum eða almennum stjórnvaldsfyrirmælum.
Í ljósi alls þessa telur umboðsmaður aðeins mögulegt fyrir embættið að beina athugun sinni að athöfnum og ætluðu athafnaleysi Sjúkratrygginga vegna samskipta við stjórnvöld, í hinu ónefnda landi, í kjölfar andláts dóttur mannsins.
Heilbrigðisráðuneytið
Eftir fyrri kvartanir föðurins til umboðsmanns Alþingis kvartaði hann til heilbirgðisráðuneytisins yfir ófullnægjandi aðstoð frá íslenskum heilbrigðisyfirvöldum vegna samskipta við umrædd stjórnvöld eftir andlát dóttur hans. Í erindinu var farið fram á að ráðuneytið hlutaðist til um að Sjúkratryggingar önnuðust nauðsynleg samskipti við stjórnvöld, í hinu ónefnda landi, vegna málsins.
Segir umboðsmaður að heilbrigðisráðuneytið hafi aflað umsagnar Sjúkratrygginga um málið og upplýsinga um greiddar bætur. Þá liggi fyrir fundargerð fundar sem faðirinn og móðir hinnar látnu áttu með lækni, sem annaðist meðferð dóttur þeirra, og fulltrúum Sjúkratrygginga. Í fundargerðinni komi meðal annars fram að stofnunin kæmi til með að hafa samband við sjúkrahúsið til að fá upplýsingar um tilkynningu málsins til eftirlitsstofnunar í landinu. Þessara upplýsinnga hafi verið aflað samdægurs og komið áleiðis til föðurins auk annarra.
Í bréfi heilbrigðisráðuneytisins frá október 2025 komi fram að ekki verði annað ráðið, að mati ráðuneytisins, en að Sjúkratryggingar hafi veitt þær leiðbeiningar og aðstoð sem stofnuninni hafi borðið að veita samkvæmt lögum. Í tengslum við umsókn um læknismeðferð erlendis hafi meðferðarlæknir dótturinnar, hér á landi, átt í samskiptum við lækna á sjúkrahúsinu, sem kæmu til með að taka meðferðina að sér. Í umsögn Sjúkratrygginga til ráðuneytisins hafi komið fram að stofnunin hefði ekki talið rétt að gera breytingu á samningum við umrætt sjúkrahús.
Sé tekið fram í bréfi ráðuneytisins að Sjúkratryggingum beri ekki að hafa sérstaka aðkomu að eða annast samskipti við eftirlitsaðila erlendis þegar grunur leiki á að mistök hafi verið gerð við veitingu heilbrigðisþjónustu, þótt stofnunin hefði greitt fyrir þjónustuna. Ábyrgð á stofnun slíkra mála og eftirfylgni þeirra liggi hjá kvartanda, rétt eins og eigi við um kvartanir hér á landi til embættis landlæknis vegna meintra mistaka eða vanrækslu við veitingu heilbrigðisþjónustu. Hafi ráðuneytið því ekki talið ástæðu til að gera athugasemdir við meðferð málsins hjá Sjúkratryggingum.
Ekki meir
Umboðsmaður segist enn fremur ekki fá séð að lög eða Evrópureglugerð um samræmingu almannatryggingakerfa, sem faðirinn vísaði til í sinni kvörtun, leggi á Sjúkratryggingar skyldu til aðstoðar við aðstandendur tryggðs einstaklings í samskiptum við stjórnvöld í öðru aðildarríki EES vegna andláts í tengslum við læknismeðferð. Telur umboðsmaður því ekki tilefni til athugasemda við niðurstöðu heilbrigðisráðuneytisins um skyldur Sjúkratrygginga gagnvart föðurnum.
Lætur umboðsmaður því meðferð sinni á kvörtuninni lokið.
Athugun
Umboðsmaður upplýsir föðurinn að lokum um að kvörtunin hafi gefið tilefni til að senda heilbrigðisráðherra bréf þar sem óskað sé upplýsinga um þær leiðbeiningar, sem sjúklingum og eftir atvikum aðstandendum þeirra kunni að vera veittar þegar heilbrigðisþjónusta sé veitt utan landsteinanna, að frumkvæði íslenskra heilbrigðisyfirvalda. Þessi athugun hafi þó ekki áhrif á niðurstöðuna í máli föðurins.
Í þessu bréfi umboðsmanns Alþingis til Ölmu Möller heilbrigðisráðherra vegna málsins segir að með þessari upplýsingabeiðni sé ekki síst litið til laga um réttindi sjúklinga. Í lögunum segi meðal annars að heilbrigðisráðuneytið skuli sjá til þess að til séu upplýsingar um réttindi sjúklinga, sjúklingafélög og sjúkratryggingar.
Segir ennfremur að til að afla upplýsinga til að taka ákvörðun, um hvort tilefni sé til að taka þessar leiðbeiningar til þeirra sem sendir séu til meðferðar erlendis af íslenskum heilbrigðisyfirvöldum til sérstakrar athugunar, sé þess óskað að ráðuneytið upplýsi umboðsmann Alþingis um hversu algengt sé að sjúklingar hér á landi þiggi heilbrigðisþjónustu erlendis að frumkvæði íslenskra heilbrigðisstofnanna. Einnig að upplýst verði hvaða upplýsingum sjúklingum og aðstandendum þeirra séu veittar, þar á meðal um réttindi þeirra í tengslum við heilbrigðisþjónustu erlendis. Þá er einnig óskað eftir gögnum sem kunni að varpa ljósi á þetta, séu þau til staðar.
Óskar umboðsmaður eftir svörum frá heilbrigðisráðherra eigi síðar en 16. október næstkomandi.