Fréttir

Katrín fagnar úrskurði í laxeldismálinu á Seyðisfirði – „Þetta eru STÓRKOSTLEGAR fréttir“

Mynd
Katrín Oddsdóttir fagnar úrskurðinum.

Katrín Oddsdóttir, lögmaður náttúruverndarsinna, greinir frá því að Úrskurðarnefnd umhverfis og auðlindamála hafi rétt í þessu fellt úr gildi synjun Húsnæðis og mannvirkjastofnunar (HMS) um að landeigendur sjávarjarða í Seyðisfirði ættu aðild að málum er tengjast byggingarleyfi fyrir sjókvíaeldi við jarðir þeirra.

„Þetta eru STÓRKOSTLEGAR fréttir en merkilegra er að þetta er í ANNAÐ sinn sem Úrskurðarnefndin hefur þurft að slá á puttana hjá HMS sem vill bara alls ekki leyfa borgurunum sem eiga jarðirnar við fyrirhugað eldi að fá rétt til að sjá gögn og andmæla,“ segir Katrín í færslu á samfélagsmiðlum. „Það er að mínu mati galin afstaða og nú hefur Úrskurðarnefndin í tvígang staðfest að hún er ólögmæt.“

Þurfi hún engu að síður að sækja aftur um formlega staðfestingu að hennar fólk eigi aðild. Ef HMS synji aftur verði einfaldlega að kæra aftur.

„Það situr verulega í mér að atvinnuvegaráðherra hafi fullyrt að leyfin sem komu út í Seyðisfirði hafi verið þau "ígrunduðustu sem leyfi sem veitt hafi verið". Þarna er hún væntanlega að vísa í hversu lengi þau hafa verið til meðferðar hjá okkar brotakenndu og, á sumum stundum, ófaglegu stofnunum en það er fráleit túlkun að ef eitthvað sé lengi að malla í þeim myrka potti sé rétturinn sem úr honum komi góður,“ segir Katrín og spyr hvort að fólki finnist þetta fagleg stjórnsýsla. Hafi þetta kostað bæði tíma og fyrirhöfn.

Hvetur hún fólk til að mæta á mótmæli gegn laxeldinu á Seyðisfirði sem fram fara á Austurvelli klukkan 15 á sunnudag.