Fréttir

Jón Óttar fagnar 40 ára afmæli Stöðvar 2 og sendir pillu á stjórnendur Sýnar

Mynd
Jón Óttar Ragnarsson, fyrsti sjónvarpsstjóri Stöðvar 2.

Jón Óttar Ragnarsson, fyrsti sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, fagnar í dag 40 ára afmæli stöðvarinnar, sem heitir í dag Sýn. 

Fyrir þá sem ekki þekkja hófust sjónvarpsútsendingar á Íslandi í mars 1955 þegar Bandaríkjaher hóf útsendingar sem náðust á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu, ellefu árum síðar hóf Ríkissjónvarpið útsendingar, aðrar sjónvarpsstöðvar voru bannaðar. Banninu var svo aflétt í ársbyrjun 1986 og hófust útsendingar Stöðvar 2 9. október 1986. 

„Stöð 2 er fjörutíu ára í dag. Þegar ég horfi til baka minnist ég magnaðra tíma. Það var vor í lofti. Útvarpslögin orðin að veruleika. Markmiðið blasti við: Að sprengja í loft upp einokun Ríkisútvarpsins á ljósvakanum!,“ segir Jón Óttar í grein sinni í Morgunblaðinu í dag. Hann segir að við stofnun stöðvarinnar hafi allir aldurshópar um allt land hvatt þá til dáða.

„Þjóðin stóð með okkur, enda þreytt á forsjárhyggju stóra bróður, þreytt á að missa af besta sjónvarps- og kvikmyndaefninu, þreytt á ófullnægjandi barnaefni, þreytt á stuttri sjónvarpsdagskrá, að ógleymdum sjónvarpslausum fimmtudögum og sjónvarpslausum júlímánuði!“

Bankinn vildi ekki fréttastofu

Í greininni fer Jón Óttar yfir hvernig staðið var að stofnuninni með stórum hópi fólks, gerðir voru samningar við fyrirtæki úti í heimi um efni og var ákveðið að nota sérstaka myndlykla, sem flestir þekkja sem afruglara, til að senda út stöðina til áskrifenda. Rifjar Jón Óttar upp að tæknin við þessa afruglara var það ný að franska fyrirtækið sem vann með Heimilistækjum við uppsetningu þurfti að hafa sig allt við til að leysa tæknivanda og annast eftirspurnina. 

Rifjar hann einnig upp viðhorf Verslunarbankans sem stóð að fjármögnun stöðvarinnar. 

„Okkar fyrsta verk, þrátt fyrir kröftug mótmæli bankans, var að stofna fréttastofu. Bættist brátt í hópinn einvalalið af framúrskarandi fréttamönnum, Páll Magnússon, Sigurveig Jónsdóttir og, síðast en ekki síst, þjóðargersemin Ómar Ragnarsson og fleiri. Með tilkomu fréttastofunnar hófst samkeppnin við ríkisrisann loks fyrir alvöru. Næsta skref var fréttamagasínið 1919 með Völu Matt og Helga Péturssyni sem sló strax í gegn. Eins og útvarpslögin gerðu ráð fyrir tvíefldi samkeppnin báðar stöðvarnar.“

Sendir pillu á stjórnendur Sýnar

Það sem skipti máli var að Stöð 2 yrði fullsköpuð sjónvarpsstöð með innlendu efni og þéttri dagskrá.

„Vandi bankans var að hann var heltekinn af þeirri ranghugmynd að farsælasta rekstrarform stöðvarinnar væri vídeóstöð með örfáum starfsmönnum í útsendingu að skipta um myndbönd með reglubundnu millibili. Bankinn var grunlaus um að ástæða þess að sjónvarpsstöðvar um allan heim leggja mesta áherslu á fréttastofu og innlenda dagskrárgerð er að þar eru peningarnir (!), því þetta eru þeir dagskrárliðir sem laða að langmest af áhorfendum, áskrifendum og auglýsingum og þeir sem gera þetta best sigra!,“ segir Jón Óttar. 

Hér má sjá grafískt útlit Stöðvar 2 árið 1986:

Jón Óttar sendir svo pillu á núverandi stjórnendur Sýnar en síðasti kvöldfréttatími Sýnar var sendur út í lok ágúst síðastliðnum.

„Í dag, 60 árum eftir stofnun þess, er Ríkissjónvarpið sigurvegarinn og í fremstu röð sjónvarpsstöðva Evrópu. Stöð 2 er hins vegar í fyrsta skipti í sinni sögu tilbúið að dusta rykið af sjálfsmorðshugmyndum Verslunarbankans. Síðasta neyðarúrræðið var að leggja niður fréttir þannig að í fyrsta skipti í fjörutíu ár situr Ísland nú aftur uppi með bara eina sjónvarpsfréttastofu. Eiginleg samkeppni í sjónvarpi er því úr sögunni og útvarpslögin frá 1985 í gjörgæslu. Draumur gamlingjanna í bankaráði Verslunarbankans, um vídeóstöðina hræbillegu, er loks að verða að veruleika. Til hamingju með daginn, Sýn!“