Fréttir

Fólk getur prentað sína eigin „Appelsínugulu plágu“

Mynd
Stytta danska listamannsins af Trump hefur vakið mikla athygli. Mynd/Facebook

Danski listamaðurinn Jens Galschiøt, sem hannaði listaverkið „Appelsínugula plágan“ hefur gefið út líkan fyrir þrívíddarprentun verksins. Líkanið er ókeypis og getur hver sem er sótt það.

Stytta Galschiøt hefur vakið mikla athygli en hún er nú til sýnis í einnig byggingu Evrópuþingsins í Strassborg í Frakklandi.

„Appelsínugula plágan“ sýnir Donald Trump Bandaríkjaforseta allsberan á herðum annars manns. Í annarri hendinni heldur hann á golfkylfu en í hinni vog réttlætisins. Styttan hefur verið til sýnis í á ráðstefnum í Brasilíu og Þýskalandi og verið sýnd í spjallþáttum í sjónvarpi í Bandaríkjunum.

Sjá einnig:

Stytta af Trump til sýnis í Evrópuþinginu – „Appelsínugula plágan“

Styttan er ekki beint skjallandi en Galschiøt hefur sagt að Trump sé „helsta ógn við lög og reglu heimsins.“ Það verði að ræða um og mótmæla þessu „tortímandi afli.“

Nú hefur Galschiøt tilkynnt það á Facebook-síðu sinni að fólk geti prentað litla útgáfu af styttunni heima hjá sér með þrívíddarprentara. Hefur hann gefið út líkan af „Appelsínugulu plágunni“ á síðunni Printables.

„Það er ókeypis að prenta. Og ókeypis til notkunar,“ segir Galschiøt. „Góða skemmtun að mótmæla.“

Mynd
Líkan af styttunni frægu. Mynd/Printables