Fjölbragðaglímukappi í Mexíkó hefur verið handtekinn eftir að hafa tekið 75 ára gamlan dómara ólöglegu glímutaki. Dómarinn lést í kjölfarið.
Miðillinn Ladbible greinir frá þessu.
El Hijo de Fishman, grímuklæddur mexíkóskur fjölbragðaglímukappi, hefur verið handtekinn og er grunaður um að hafa valdið dauða dómara í hringnum. Notaði Fishman ólöglegt tak á dómarann.
Ekki hefur verið greint frá nafni Fishman því að mexíkóskir glímukappar fela nöfn sín, en hann er 36 ára gamall og sonur annars glímukappa sem einnig var kallaður Fishman.
Stórhættulegt tak
Á miðvikudag mætti Fishman glímumanninum Mascara Sagrada í Hidalgo, norðan við Mexíkóborg, í viðburði sem kallast El Patron Espectaculos.
En eins og oft vill verða í fjölbragðaglímu þá breiddust átökin út og dómarinn, hinn 75 ára Gerardo German Pineda, kallaður El Bulho, varð fyrir barðinu á Fishman.
Tók Fishman gamla manninn í ólöglegt og hættulegt tak. Það er hélt höndum hans aftan við bak, sneri honum á hvolf og skellti honum á gólfið með höfuðið á undan á milli lappa Fishman. Tak sem kallast á ensku „Double Underhook Piledriver“. Takið er bannað bæði í Mexíkó og Bandaríkjunum vegna þess hversu hættulegt það er fyrir höfuð, háls og mænu.
El Buho lá hreyfingarlaus á gólfinu eftir þessa meðferð í nokkrar mínútur áður en einhver athugaði með hann. Þá var ljóst að hann var meðvitundarlaus.
Enginn læknir á staðnum
Enginn læknir eða heilbrigðisstarfsmaður var á staðnum og þegar sjúkraliðar komu var El Buho úrskurðaður látinn á staðnum.
Fishman var hins vegar handtekinn og rannsókn stendur yfir á málinu. Óvíst er hvort að hann verður ákærður fyrir manndráp. Mexíkóska glímusambandið hefur boðið honum lögfræðiaðstoð í málinu en hefur einnig vottað fjölskyldu dómarans samúð.