Fyrir skammri stundu var kveðinn upp dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur yfir þremenningunum Kareem M. M. Abufarhah, Qossay Ali Yahya Alsadi og Mohamed Sayidali Ahmed en þeir voru ákærðir fyrir tilraun til manndráps vegna árásar á mann í bílakjallara við Þórunnartún í Reykjavík aðfaranótt 17. mars 2026. Samkvæmt ákæru óku mennirnir að honum og réðust síðan á hann með barsmíðum auk þess sem hann var stunginn með óþekktu áhaldi.
Einn mannanna, Kareem M. M. Abufarhah, var sakaður um að hafa ekið Land Rover-bifreið á mikilli ferð á brotaþola þannig að hann hafnaði á vélarhlíf bifreiðarinnar og féll síðan til jarðar. Þá var Qossay Ali Yahya Alsadi sakaður um að hafa ítrekað barið manninn í líkamann með óþekktu áhaldi. Þriðji maðurinn, Mohamed Sayidali Ahmed, var ákærður fyrir að hafa stungið brotaþola í vinstri rasskinn með óþekktu stunguvopni.
Afleiðingar árásarinnar voru alvarlegar. Samkvæmt ákæru var brotaþoli í lífshættulegu ástandi eftir árásina. Hann hlaut meðal annars sár í húðbeð vinstri rasskinnar, lungnamar á báðum lungum og blóðþurrðarlost. Þá hlaut hann brot á vinstri upphandleggsbeini, auk mars, bólgu og fleiðursárs á vinstri ökkla og eymsla í vinstri handlegg og kvið.
Mönnunum þremur er gefið að sök að hafa framið brotin í félagi. Háttsemin var talin varða við 211. grein almennra hegningarlaga, um manndráp, sbr. 1. mgr. 20. greinar laganna um tilraun til brots.
Brotaþoli krafðist 10 milljónir króna í miskabætur vegna árásarinnar.
Einn sýknaður og tveir sakfelldir
Tveir voru sakfelldir í málinu og hlaut annar þeirra, Kareem M. M. Abufarhah, fimm ára fangelsi. Mohamed Sayidali Ahmed hlaut 18 mánaða fangelsi en Qossay Ali Yahya Alsadi var sýknaður.
DV náði tali af verjanda Mohamed Sayidali Ahmed, Sveini Andra Sveinssyni, og spurði hvort dóminum yrði áfrýjað og sagði hann það ekki ákveðið. Hann og sakborningur hans eigi eftir að ræða næstu skref.
Sakborningarnir voru ekki viðstaddir dómsuppkvaðningu heldur hlýddu á dómsorð í gegnum fjarfundabúnað.
Þeir sem voru sakfelldir voru síðan dæmdir til að greiða brotaþolanum tæplega 1,5 milljónir króna í miskabætur en hann hafði krafist 10 milljóna.
Athygli vekur að Kareem M. M. Abufarhah, þarf að greiða rúmlega 13,6 milljónir í sakarkostnað, mest af því eru málsvarnarlaun til verjanda hans, Ólafs Vals Guðjónssonar, rúmlega 12 milljónir króna.
Fréttin verður uppfærð