Fréttir

Fékk tilboð frá iðnaðarmanni og rak upp stór augu – „Hvað finnst ykkur um það?“

Mynd
Samsett mynd: Getty/Pixabay/DV

Líflegar umræður hafa skapast á Facebook-síðunni Vertu á verði – eftirlit með verðlagi eftir að einn meðlimur hópsins greindi frá því að hafa fengið tilboð frá iðnaðarmanni þar sem bæði akstursgjald og verkfæragjald voru rukkuð sérstaklega.

Viðkomandi furðaði sig á gjaldtökunni og velti því fyrir sér hvort eðlilegt væri að viðskiptavinir greiddu sérstaklega fyrir verkfæri sem iðnaðarmenn nota við störf sín.

„Nú hefur mikið verið sett út á verð á klippingu í þessari grúppu. Nú fékk ég tilboð frá iðnaðarmanni þar sem ég þarf að greiða akstursgjald og verkfæragjald. Hvað finnst ykkur um það? Væri í lagi t.d. að hárgreiðslufólk rukki tækjagjald?“ spurði viðkomandi.

Spurningin vakti töluverð viðbrögð og reyndust skoðanir skiptar.

„Hef aldrei skilið af hverju kúnninn á að borga verktaka aukalega fyrir að koma sér í vinnu og nota verkfæri við vinnuna,“ skrifaði einn meðlimur hópsins og taldi eðlilegra að slíkur kostnaður væri innifalinn í tímagjaldinu.

„Á saumakona að rukka aukalega fyrir notkun á skærum, pressu og saumavél?“ spurði sami einstaklingur.

Komi bara á hjóli og noti hendurnar

Aðrir voru ósammála gagnrýninni og bentu á að verkfæri iðnaðarmanna gætu verið afar dýr og að ferðakostnaður væri óhjákvæmilegur hluti af rekstrinum.

„Það er bara mjög eðlilegt að borga verkfæragjald fyrir iðnaðarmann því ekki eru verkfærin ódýr,“ skrifaði einn.

Annar gerði góðlátlegt grín að umræðunni og lagði til að viðkomandi bæði iðnaðarmanninn einfaldlega um að mæta á hjóli og nota bara hendurnar.

Þá benti einn þátttakandi á að viðskiptavinir greiddu alltaf fyrir rekstrarkostnað fyrirtækja, hvort sem hann væri sérstaklega sundurliðaður á reikningi eða innifalinn í verðinu.

„Þú hefur fengið sundurliðað tilboð, við borgum alltaf fyrir tæki, húsnæði, etc… allt sem þarf til að standa í rekstri,“ skrifaði hann.

Deilt um verð á klippingum

Umræðan snerist einnig að verði á hárgreiðsluþjónustu, sem hefur áður verið mikið til umræðu í hópnum.

Sá sem hóf umræðuna benti á að hársnyrtar þyrftu einnig að standa undir miklum rekstrarkostnaði, meðal annars vegna stólaleigu og dýrra verkfæra, án þess að rukka viðskiptavini sérstaklega fyrir hvern kostnaðarlið.

„Auðvitað vinnur hann ekki án tækja en hársnyrtir klippir engan úti á götuhorni og hans tækja- og efniskostnaður er innifalinn í tímakaupinu,“ skrifaði viðkomandi.

Aðrir bentu hins vegar á grundvallarmun á þjónustunni. Viðskiptavinir færu sjálfir á hárgreiðslustofur en iðnaðarmenn þyrftu oft að ferðast milli verkstaða með verkfæri sín og búnað.

„Annars vegar ert þú að fara í klippingu og hins vegar er iðnaðarmaður að koma til þín. Það er ekki það sama,“ skrifaði einn og ljóst að á þessu eru skiptar skoðanir eins og svo mörgu öðru.