Fréttir

Faðir nauðgaði 14 ára stúlku á meðan móðirin tók það upp á farsímann sinn

Mynd
Stúlkan reyndi að hafa samband við lögreglu en ekki náðist að rekja símtalið.

Foreldrar fjórtán ára stúlku í Indlandi hafa verið handteknir eftir hrottalegt kynferðisbrot gagnvart henni. Faðirinn nauðgaði stúlkunni á meðan móðirin tók það upp á myndband.

Breska blaðið The Express greinir frá þessu.

Atvikið gerðist í síðustu viku nærri borginni Anjar á vesturströnd Indlands. Lögregla mætti á heimili fjölskyldunnar á föstudag, 2. október, eftir að 14 ára stúlka hafði komist í farsíma og hringt í neyðarlínu. Voru foreldrar hennar handteknir og eru grunaðir um gróft kynferðisbrot.

Stúlkan sagði lögreglumönnunum hvað hefði gerst og gögn úr farsíma studdu þá frásögn að sögn lögreglunnar.

Faðir stúlkunnar hafði reiðst eftir að hann hafði heyrt hana tala við dreng á hennar aldri, annað hvort vin eða kunningja. Tók hann af henni farsímann og mölvaði hann.

Síðan réðist hann á stúlkuna og nauðgaði henni fyrir framan móður hennar. Móðir hennar tók upp sinn farsíma og tók myndband af nauðguninni.

Það tók nokkra daga fyrir lögregluna að geta brugðist við. Stúlkan hafði náð að hringja tveimur eða þremur dögum fyrir handtökuna í lögregluna en faðirinn náð að slökkva á símanum þannig að ekki var hægt að rekja símtalið. Það var ekki fyrr en stúlkan komst í annan síma sem hægt var að bregðast við.

Að sögn lögreglu hefur fjölskyldan búið í Anjar í um sex ár. Stúlkan á þrjár yngri systur.

Rannsókn málsins stendur enn yfir en foreldrarnir hafa verið kærðir fyrir kynferðisbrot.