Fréttir

Erfitt að sjá að ávinningurinn af fölsuðum peptíðum sé áhættunnar virði

Mynd
Hjalti Kristinsson, sérfræðingur hjá Lyfjastofnun og lektor í lyfja og eiturefnafræði við Háskóla Íslands. DV/KSJ

Notkun ólöglegra peptíða hefur sprungið út á Íslandi síðasta árið. Á samfélagsmiðlum eru markaðssettar mismunandi tegundir peptíða sem eru sagðir hafa ýmsar verkanir. Má þar nefna Retatrutide, eða Reta, sem á að hjálpa fólki við að grennast. Fyrir utan að um sé að ræða lyf sem væru alla jafna lyfsseðilsskyld þá er ekki hægt að ganga úr skugga um það sé í raun í glasinu, getur það verið mikil áhætta að sprauta því í sig. Kom það fram í tilkynningu Lyfjastofnunar í júlí síðastliðnum að í ólöglegum peptíðum sem tollgæslan gerði upptæk reyndist lítið um virk lyfjaefni en mikið um óhreinindi.

Hjalti Kristinsson, sérfræðingur hjá Lyfjastofnun og lektor í lyfja og eiturefnafræði við Háskóla Íslands, ræddi um ólögleg peptíð í nýjasta þætti Átakalína. 

„Mér skilst að, og það eru fræðilega mögulegar, nokkrar leiðir sem fólk er að taka þetta. Það eru annars vegar svona fölsuð lyf bara í umferð. Öll Retatrutide eru þá fölsuð ef þau koma í einhverjum pakkningum, þegar lyfið er ekki, eins og er, þó það sé alveg að koma á markað, ekki komið á markað,“ segir Hjalti. „Og svo er líka, af því það má selja efnin til rannsóknarstofa. Þegar ég vann á rannsóknarstofu þá gat ég pantað hin ýmsu efni þar sem formúlan er birt, hvort sem það er peptíð eða annað, til notkunar í rannsóknum.“ Þau efni eru sérstaklega merkt þannig að þau séu einungis til notkunar við rannsókna. 

„Háskóli Íslands getur pantað, og þarf að geta pantað, til þess að geta gert mikilvægar rannsóknir og geta borið saman. Þetta er svona hluti af hinum akademíska heimi, að panta hin ýmsu efni til þess að stúdera,“ segir hann. 

„Og þegar eitthvað er svona spennandi fyrir almenning að taka inn, að þá misnotar fólk þetta og kaupir svona bulk, einhverjir aðilar, af þessu, til síðan að selja. Sem sagt ekki bara fyrir rannsóknir. Og þá þarf að blanda það. Þessi efni, retatrutide til dæmis, líkt og fleiri þyngdarstjórnunarlyf, eru gefin undir húð oftast nær.“

Þá er verið að sprauta efninu í líkamann, þó ekki í æð. 

„Þú ert farinn að ganga dálítið langt, annaðhvort ertu þá að kaupa eitthvað sem er svona falsað lyf, getur innihaldið eitthvað allt annað. Falsað bulk-duft eitthvað og blandað þetta. Persónulega er þetta dálítið langsótt og ég á erfitt með að sjá að ávinningurinn sé þarna virði áhættunnar.“

Áður en lyf eru sett á markað þá þurfa þau að fara í gegnum nálarauga vísindanna, þar á meðal að sannreyna hvort þau virki í raun og veru, það er ekki búið að gera það í tilfelli ólöglegu peptíðanna sem eru í umferð. 

„Nú tel ég alveg ágætlega líklegt að vísindalega hafi eitthvað af þessum peptíðum áhrif og hafi einhverja verkun,“ segir Hjalti. Það þarf meðal annars að finna rétta skammtinn, það er einnig hluti af neytendavernd að vita að lyfið virki í raun. Dæmi eru um hlaðvarpara úti í hinum stóra heimi sem eru að mæla með efnum sem eru ekki fullkomlega sannreynd.

„Hvar endum við? Á þá fólk bara einhvern veginn að prófa sig áfram í einhverri efnasúpu online?,“ spyr hann. „Það að sannreyna verkun er mjög mikilvægt líka upp á, ekki bara öryggi, heldur út frá gamla snákaolíukonseptinu.“

Hér má horfa á þáttinn í heild