Ekki var krafist frekara gæsluvarðhalds yfir athafnamanni á sextugsaldri sem handtekinn var við komu til landsins frá Portúgal þann 4. október.
Þess í stað var krafist tveggja vikna farbanns yfir manninum, til 23. október.
Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu og varðar rannsókn á umfangsmiklum fíkniefnalaga- og peningaþvættisbrotum. Sex aðrir voru í gæsluvarðhaldi vegna málsins en voru látnir lausir fyrr í vikunni.
Mun fleiri, eða um 17 manns voru handteknir, þar á meðal tveir bílasalar, annar starfsmaður bílaumboðsins BL, í umfangsmiklum lögregluaðgerðum um mánaðamótin. Húsleitir voru gerðar á heimilum en ekki í fyrirtækjum.
Umræddur athafnamaður, sem var látinn laus úr haldi í dag, er tengdur við rekstur samlokustaðar og fasteigna- og byggingarfélaga. Mbl.is greindi frá því að hann hafi verið staddur erlendis (s.s. Portúgal) þegar lögregluaðgerðirnar stóðu yfir, lögregla hefði verið í sambandi við hann og hvatt hann til að koma heim. Hann var síðan handtekinn við komuna til landsins.