Fréttir

„Við vitum ekki hvort þetta sé Reta eða bara eitthvað kínverskt piss“

Mynd
Joshua Kingdon fjarþjálfari. DV/KSJ

„Við höfum heyrt bara í gegnum lyfjastofnanasamstarf, og í lyfjafræðiheiminum, að það er rosa algengt að þegar fólk er að taka inn svartamarkaðslyf, það er mjög miklu algengara en fólk heldur að þau innihaldi eitthvað allt annað,“ segir Hjalti Kristinsson, sérfræðingur hjá Lyfjastofnun og lektor í lyfja og eiturefnafræði við Háskóla Íslands, í þættinum Átakalínur. 

Í þættinum er fjallað um ólöglega peptíða sem ganga nú kaupum og sölum á samfélagsmiðlum. Ýmsir peptíðar eru til sölu, þar á meðal þyngdarstjórnunarlyfið Retatrutide, eða Reta, sem hefur ekki hlotið markaðsleyfi. 

Dæmi eru um hér á landi að leitað hafi verið til eiturefnamiðstöðvar Landspítala eftir að einstaklingur sprautaði sig með peptíð sem keypt var á svörtum markaði. Hjalti hefur heyrt leiðinlegar frásagnir erlendis. Eituráhrifin séu ekki endilega af efninu sjálfu sem einstaklingurinn heldur að hann sé að taka. 

„Það er engin gæðastjórnun í þessu og það eru ýmsar leiðinlegar frásagnir.“

 

Joshua Kingdon fjarþjálfari segir í þættinum að hann hafi sjálfur reynslu af því að prófa Reta. 

„Það slær á matarlyst og ég hef notað það í kringum keppnistímabil, og eftir keppnistímabil til þess að hjálpa manni að vera ekki of svangur,“ segir hann. Eins og staðan er í dag er verið að flytja þessi efni inn frá Kína. Hann segir að hann sé smeykur við að sprauta í sig efni sem komi frá Kína. 

„Stærsti gallinn núna, eins og til dæmis með Reta, er að við vitum ekki hvað er í glasinu sem við erum að sprauta í okkur. Við vitum ekki hvort þetta sé Reta eða bara eitthvað kínverskt piss í rauninni. En maður gerir það bara, maður tekur áhættuna,“ segir Joshua.

Hér má horfa á þáttinn í heild sinni