Fréttir

Arion banki krefst tuga milljóna frá huldufyrirtæki sem stýrt er af manni sem finnst ekki

Mynd
Mynd: Eyþór Árnason

Arion banki hefur stefnt fyrirtæki, sem lítið fer fyrir og ekki virðast finnast merki um á skráðu heimilisfangi þess, til greiðslu um 83 milljóna króna skuldar, auk dráttarvaxta. Skráður forsvarsmaður fyrirtækisins virðist heldur ekki finnast en hann er skráður með óþekkt heimilisfang. Umræddur aðili virðist hafa haft með höndum rekstur á öðru fyrirtæki, í sama húsi, en starfsemi þess virðist hafa verið hætt.

Fyrirtækið sem um ræðir er skráð í fyrirtækjaskrá með heimilisfang í atvinnuhúsnæði í Hlíðahverfi í Reykjavík. Í símaskrá eru ýmis fyrirtæki og stéttarfélög skráð til heimilis í húsnæðinu en ekki umrætt fyrirtæki. Fyrirtækið hefur ekki skilað ársreikningi fyrir árið 2025 en miðað við ársreikning þess fyrir árið 2024 var starfsemin ekki umfangmikil en skráð starfsemi fyrirtækisins er leiga atvinnuhúsnæðis. Tekjur fyrirtækisins á árinu 2024 námu um 11 milljónum króna. Eigið fé var neikvætt og það virðist aðeins hafa átt eina fasteign. Ekki er að sjá að ársreikningurinn hafi verið undirritaður af neinum stjórnanda eða eiganda félagsins og ekki heldur endurskoðanda.

Í fyrirtækjaskrá eru skráðar tvær tilkynningar við nafn fyrirtækisins, dagsettar í september og október 2025, merktar úrsögn en óljóst er hvað það þýðir nákvæmlega. Mögulega er um að ræða breytingar á stjórn félagsins en það er að minnsta kosti ekki merkt sem afskráð.

Við stutta leit finnast ekki aðrar upplýsingar um fyrirtækið en þær sem eru skráðar í fyrirtækjaskrá og ársreikning þess.

Arion

Í stefnu Arion banka á hendur fyrirtækinu, sem birt er í Lögbirtingablaðinu þar sem enginn forsvarsmaður hefur fundist til að taka við stefnunni, segir að í mars 2025 hafi bankinn gefið út skuldabréf á fyrirtækið. Upphæð þess var 82,5 milljónir króna en það var vísitölutryggt. Lánið var til 25 ára, á breytilegum vöxtum en með föstu 0,90 prósent vaxtaálagi. Til tryggingar greiðslu lánsins var sett fasteign sem er hluti af húsnæðinu sem fyrirtækið er skráð til heimilis í og líklega er um að ræða einu fasteign fyrirtækisins. Umrædd fasteign er um 370 fermetrar en skráð í fasteignaskrá sem veitingahús.

Lánið var gjaldfellt í upphafi þessa árs eftir að ekki var greitt af því en eftirstöðvar þess með höfuðstól, vöxtum, og verðbótum námu þá um 83,6 milljónum króna.

Finnst ekki

Segir enn fremur að stefnan sé birt í Lögbirtingablaðinu þar sem skráð lögheimili fyrirtækisins sé atvinnuhúsnæði og ekki vitað um starfsemi á staðnum. Einnig er vísað til þess að skráður eigandi félagsins sé með óþekkt heimilisfang á höfuðborgarsvæðinu.

Eigandi fyrirtækisins virðist því ekki hafa fundist og heldur engin ummmerki um fyrirtækið í áðurnefndu atvinnuhúsnæði. Eigandinn virðist hafa verið með annars konar atvinnustarfsemi í húsnæðinu fyrir nokkrum árum en þeirri starfsemi virðist hafa verið hætt. Heimasíða og Facebook-síða þess fyrirtækis eru að minnsta kosti óvirkar og þegar leitað er undir nafni þess í fyrirtækjaskrá er það skráð gjaldþrota.

Í stefnunni segir að samkvæmt skuldabréfinu hafi fyrirtækið skuldbundið sig til að greiða dráttarvexti ef lánið yrði gjaldfellt. Því er krafist greiðslu eftirstöðva lánsins auk dráttarvaxta. Skorað er á forsvarsmann fyrirtækisins að greiða skuldina áður en málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í næsta mánuði. Mæti hann ekki fyrir dóm má búast við að krafa Arion banka verði gerð aðfararhæf gagnvart fyrirtækinu sem þýðir að þá eignast bankinn væntanlega húsnæðið sem var sett til tryggingar greiðslu.