Fréttir

Allt á annan endann þegar sveitarstjórnarmaður tilbað djöfulinn á fundi – „Heill þér Satan“

Mynd
Dalbey ávarpaði sjálfan myrkrahöfðingjann á sveitarstjórnarfundi.

Óhætt er að segja að allt hafi farið á annan endann eftir að fyrrverandi sveitarstjórnarmaður í bænum Ottumwa City í Iowa tilbað sjálfan myrkrahöfðingjann á fundi. Var hann sakaður um að leggja bölvun á bæinn.

Sjónvarpsstöðin Fox New greinir frá þessu.

Matt Dalbey, fyrrverandi sveitarstjórnarmaður í bænum Ottumwa City í Iowa fylki leiddi bæn á sveitarstjórnarfundi. Stóð fólk upp, lúkti augum og bjóst við því að Dalbey myndi fara með styrkjandi orð í nafni Jésú Krists fyrir hópinn.

En það var nú ekki svo. Dalbey fór með sataníska bæn, ávarpaði myrkrahöfðingjann og kallaði eftir að fólk léti eftir því að fólk léti eftir lúsíferískri leit sinni að sannleikanum. Endaði hann bænina á orðunum: „Heill þér Satan“

Í myndbandi af aftvikinu sést að fólk stóð og mótmælti ekki strax. Hugsanlega ekki áttað sig á því hvað var að gerast.

Bölvun á bænum

En eftir að bæninni lauk lét prestur að nafni Rick Bick í sér heyra og truflaði fundinn. Krafðist hann þess að þeirri bölvun sem Dalbey hefði sett á bæjarfélagið yrði aflétt samstundis.

„Við skulum afnema þessa bölvun sem lögð var á bæinn okkar. Þetta með „Heill Satan“ eða „Heill myrkra guð“ – slíkt er ekki velkomið hér,“ sagði Bick skelkaður.

Sveitarstjórnarkona að nafni Cara Galloway sagði Bick að bíða með umræðuna þar til orðið væri laust en Bick lét ekki segjast.

„Þetta þarf að gerast núna. Ég skil vel hvað frú Galloway er að segja, en þetta var bölvun sem lögð var á bæinn,“ sagði séra Bick. „Þegar hann sagði „Heill þér Satan“ ... flest ykkar vita af þessu, og við þurfum einfaldlega að stöðva þetta og snúa því við.“

30 sekúndna hreinsun

Bæjarstjórinn Benjamin Foote greip þá til þess ráðs að kalla eftir 30 sekúndna hléi til þess að fólk gæti beðið til guðs síns og hreinsað þetta í burtu.

„Þetta endurspeglar ekki samfélag okkar. Sem bæjarstjóri í heimabæ mínum í Iowa þekki ég íbúa Ottumwa, og bænastundin sem flutt var í upphafi fundarins á þriðjudag endurspeglar hvorki trú né gildi þeirra fjölskyldna sem eiga heima í þessum bæ,“ sagði Foote.