Kona sem starfar á Landspítalanum braut lög þegar hún fletti upp í sjúkraskrá annarrar konu án leyfis og án þess að það tengdist starfi hennar á nokkurn hátt. Landspítalinn vísaði ábyrgðinni á uppflettingunum alfarið á hendur starfsmanninum sem ansaði ekki beiðni Persónuverndar um skýringar.
Í ákvörðun Persónuverndar í málinu kemur fram að konan sem kvartaði til stofnunarinnar hafi sagt í kvörtuninni að eftirlitsnefnd spítalans hafi staðfest að starfsmaðurinn hafi flett upp í sjúkraskrá hennar í tiltekinn fjölda skipta. Í kvörtuninni kom fram að þetta hefði starfsmaðurinn gert í heimildarleysi.
Alls var um níu uppflettingar á árunum 2021-2024 að ræða en það kemur ekki fram hvaða starfi starfsmaðurinn gegndi á Landspítalanum og hvort hún starfi þar yfirhöfuð ennþá. Eftir ábendingu frá konunni tók eftirlitsnefnd um rafræna sjúkraskrá á Landspítala umræddar uppflettingar til skoðunar. Niðurstaða nefndarinnar var að starfsmaðurinn hafi ekki sýnt fram á, við rannsókn málsins, að hún hefði átt lögmætt erindi í sjúkraskránna í umrædd skipti, og því var starfsmaðurinn talin hafa brotið gegn lögum um sjúkraskrár og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Þessi háttsemi starfsmannsins var síðan tilkynnt til embættis landlæknis og Persónuverndar, í samræmi við lög um sjúkraskrár.
Meðferð
Í kvörtun sinni til Persónuverndar vísaði konan til þess að starfsmaðurinn hefði ekki haft neina lögmæta ástæðu til að fletta upp í sjúkraskránni, enda hefði hún ekki komið að meðferð hennar á nokkurn hátt.
Í svörum Landspítalans til Persónuverndar var vísað til niðurstöðu Eftirlitsnefndarinnar og að þar sem starfsmaðurinn hafi farið út fyrir aðgangsheimildir sínar, samkvæmt lögum um sjúkraskrár og reglum spítalans, bæri hún sjálf ábyrgð á uppflettingum í sjúkraskránni.
Persónuvernd bauð starfsmanninum að tjá sig um kvörtunina auk þess sem farið var fram á tilgreindar upplýsingar frá henni. Athygli hennar var vakin á því að bærust engin svör innan tilgreinds frests mætti gera ráð fyrir að málið yrði tekið til úrlausnar, án frekari tilkynninga, á grundvelli fyrirliggjandi gagna.
Skemmst er frá því að segja að engin svör bárust frá starfsmanninum og því virðist hún ekki hafa verið viljug til að veita Persónuvernd skýringar á framferði sínu.
Ábyrg
Í niðurstöðu Persónuverndar segir að almennt sé litið svo á að Landspítalinn teljist ábyrgðaraðili að uppflettingum starfsmanna sinna í sjúkraskrám, þegar þær séu framkvæmdar af þeim heilbrigðisstarfsmönnum sem komi að meðferð sjúklings og þurfi á sjúkraskrárupplýsingum hans að halda vegna meðferðarinnar. Fari starfsmaður hins vegar út fyrir aðgangsheimildir sínar beri hann sjálfur ábyrgð á því.
Starfsmaðurinn hafi ekki veitt nein andsvör og eftirlitsnefnd spítalans hafi komist að þeirri niðurstöðu að starfsmaðurinn hafi ekki átt lögmætt erindi í sjúkraskrá konunnar í umrædd níu skipti.
Persónuvernd segist ekki hafa forsendur til að endurskoða mat á því hvenær aðgangur að sjúkraskrárupplýsingum sé nauðsynlegur í þágu meðferðar og verði því eftirlit stofnunarinnar að takmarkast við skoðun á því hvort sú vinnsla persónuupplýsinga, sem felst í uppflettingu í sjúkraskrá, hafi verið í samræmi við skilyrði persónuverndarlaga.
Niðurstaðan er að þessar níu uppflettingar starfsmannsins í hinni umræddu sjúkraskrá hafi ekki verið í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Persónuvernd telur, í ljósi ákvæða laganna, málsatvika og að teknu tilliti til reglna um meðalhóf ekki tilefni til að sekta starfsmanninn en veitir henni þess í stað áminningu.