Þung orð hafa verið látin falla um leigubremsufrumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Seðlabankastjóri hefur lýst leigubremsu sem heimskulegri, formaður Sósíalistaflokksins hefur á móti kallað viðbrögðin offors í prelátum nýfrjálshyggju. Þá tókust þingmenn á um frumvarpið í morgun.
Í frumvarpinu er lagðar til breytingar á húsaleigulögum þar sem meðal annars er komið á svokallaðri leigubremsu. Leigubremsa þýðir að hækkun á leiguverði má aldrei verða meiri en hækkun á vísitölu neysluverðs. Ef að leigusali ætlar að hækka leiguna reglulega á leigutímanum þarf það að koma fram í leigusamningnum og verður bannað að hækka leiguna umfram það.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri bakkaði eilítið með orð sín í Kastljósi í gærkvöldi en þar sagði hann að Seðlabankinn hefði ekki fengið frumvarp Ragnars Þórs til umsagnar og væri hann með orðum sínum um að leigubremsa væri heimskuleg ekki að koma með beina umsögn um frumvarpið sjálft. „Kannski er það sem við vorum að segja í dag að þetta sé hættulegur vegur að ætla að fara eftir,“ sagði Ásgeir.
Lítil og mild leigubremsa
Ummæli Ásgeirs féllu sums staðar í grýttan jarðveg, þar á meðal hjá Jóni Ferdínand Estherarsyni, formanni Sósíalistaflokksins, sem skrifaði grein um málið á Vísi og Stefáni Ólafssyni félagsfræðing, sem skrifaði einnig grein um málið á Vísi. Jón Ferdínand beindi spjótum sínum að stýrivaxtastefnunni vegna ummæla seðlabankastjóra.
„Það sem mér finnst heimskulegt og þá meina ég, alveg stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun, er stýrivaxtastefna Seðlabankans. Stefna sem eykur verðbólgu, dregur úr uppbyggingu húsnæðis í verðbólguástandi sem er að meginuppistöðu drifið áfram af húsnæðismarkaði í algerri klessu,“ sagði Jón Ferdínand á Facebook.
„Þessi litla og afar milda leigubremsa, sem er alvanalegt tól víða um Evrópu, er ekki einu sinni verðstýring, bara vægur dempari á stjórnleysið á leigumarkaði. Í raun þarf að ganga miklu lengra, eins og ég skrifaði um í grein í dag og því alveg einstaklega kjánalegt að sjá offorsið í prelátum nýfrjálshyggjunnar við þessu smáa skrefi í rétta átt.“
Margir hafa einnig látið í sér heyra sem eru sammála orðum seðlabankastjóra, þar á meðal Eyþór Arnalds, fyrrum oddviti Sjálfstæðisflokksins, á X.
@h_arnason Kúba er gott dæmi um miðstýringu leigu með tilheyrandi hruni siðmenningar
— Eythor Arnalds (@eythorarnalds) October 7, 2026
Snertir stóran hóp fólks
Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, sagði í Bítinu á Bylgjunni í morgun að með þessu væru stjórnvöld að tryggja rétt leigjenda gagnvart ofurstórum leigufélögum, það sé ekki í takt við það sem gerist annars staðar að hækka leigu um hver mánaðarmót. Hann taki ekki orðum seðlabankastjóra nærri sér.
„Við eigum nú ekki að fara á taugum við það þegar við erum að breyta reglum í átt við það sem þær eru á Norðurlöndum. Þetta snertir stóran hóp fólks, það eru um hundrað þúsund manns sem búa í leiguhúsnæði og það má ekki gleyma öðrum hópi, sem eru minni fyrirtæki sem eru að leigja hjá leigufélögunum, það hefur orðið mikil samþjöppun þar, þannig að það þarf líka að tryggja réttarstöðu minni fyrirtækja sem eru í leiguhúsnæði leigufélaga. Þetta er bara í takt við það sem er í öðrum Norðurlöndunum og það má ekki gleyma því að þetta úrræði var kynnt fyrst til sögunnar af stjórnvöldum árið 2019, þegar átti að tryggja aftur kjarasamninga. Svo aftur 2024, hverjir voru þá við völd? Það var Framsókn, Sjálfstæðis og einn flokkur í viðbót. Núna er þetta það slæmt að sömu flokkar vilja taka þetta af dagskrá.“
Fleiri muni selja
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, sagði í sama innslagi í Bítinu að tilgangur og markmið laganna væru góð. „Mér finnst þetta ekki gott frumvarp og mér finnst þetta ekki til þess fallið að hjálpa leigjendum eða þeim sem á að reyna að hjálpa,“ sagði Nanna. „Markaðurinn er loksins núna að leysa málið því það er allt í frosti út af efnahagsaðgerðum þessarar ríkisstjórnar. Fasteignamarkaðurinn er frosinn en líka leigumarkaðurinn, þannig að það er enginn að hækka núna, það eru allir bara að reyna að finna leigjendur og halda í leigjendur. Það sem mun gerast, um leið og þú fiktar meira í markaðnum og ert að reyna að handstýra þessu, um leið og markaðurinn losnar úr þessu frosti þá munu fleiri selja, íbúðum mun fækka og leigan mun hækka, þú ýtir leigjendum út í það að þurfa að hækka rosalega mikið í byrjun, svo stækkar báknið því það eru alls konar undanþágur sem skekkja stöðu markaðarins.“
Þá setur Nanna spurningamerki við að þetta hafi tekist vel til á hinum Norðurlöndunum, til dæmis séu Finnar að vinda ofan af sínu kerfi. „Þetta hefur verið reynt úti um allt, það er alltaf sama niðurstaðan. Spánverjar reyndu þetta, næstu tvö árin á eftir fækkaði íbúðum. Það er ekki þannig að það verði ekki íbúðir eftir, þeim mun fækka,“ sagði Nanna.
„Leigjendur geta ekki verið ánægðir með það að leigan á þá hækki, leigjendur geta ekki verið ánægðir með það að þeir hafi úr færri íbúðum að velja. Þannig að þessi rök Sigurjóns standast enga skoðun og einstaklingar sem eiga íbúð núna í dag, hvað haldið þið að margir þeirra vilji ekki frekar vera með átta prósent vexti heldur en að liggja á peningunum í fasteign.“