Öll sex fjölmennustu sveitarfélög landsins voru rekin með halla á fyrstu sex mánuðum ársins, að minnsta kosti þegar kemur að A-hluta rekstrarins, þess hluta hans sem fjármagnaður er fyrst og fremst með skattfé. Reykjanesbær er nýjasta sveitarfélagið til að bætast í þann hóp.
Greint var frá því í september að fjölmennasta sveitarfélagið Reykjavíkurborg hefði verið rekið með 3,2 milljarða króna halla þegar kemur að A-hlutanum, borgarsjóði, en gert hafði verið ráð fyrir 399 milljóna króna afgangi, í fjárhagsáætlun. Þegar B-hluti samstæðunnar, fyrirtæki og félög í eigu borgarinnar, er tekinn með í reikninginn eykst hallinn ennþá meira, í 5,47 milljarða en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir 6,7 milljörðum í afgang.
Meirihlutinn, Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsóknarflokkur skýrði hallann á borgarsjóði m.a. með því að velferðar- og skólamál hefðu farið fram úr fjárheimildum og sömuleiðis vaxtagjöld og verðbætur.
Fulltrúar Samfylkingarinnar, sem var í meirihluta þegar fjárhagsáæltun þessa árs var samþykkt, sögðu hins vegar að grunnrekstur borgarinnar væri traustur og að hallinn skýrðist einkum af hækkandi verðbólgu, afskriftum hjá Félagsbústöðum vegna sveiflna á fasteignamarkaði og einskiptis afskriftum vegna yfirfærslu hjúkrunarheimila og þróunarverkefna sem hætt hafi verið við. Einnig væri þörf á í samvinnu við ríkið að taka á uppsöfnuðum halla vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríkinu til sveitarfélaga.
Kópavogur
Í næst fjölmennasta sveitarfélaginu Kópavogi var A-hluti rekinn með 222,2 milljóna króna halla, á fyrstu sex mánuðum ársins, en samstæðan, A- og B-hluti, með 111,7 milljóna króna halla. Það var þó betri niðurstaða en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir en í henni var reiknað með 484,7 milljóna króna halla á A-hlutanum en 417,9 milljóna króna halla á A- og B-hluta.
Þegar árshlutauppgjörið var kynnt í bæjarráði kenndi meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks einkum um verðbólgu og háum vaxtakostnaði.
Minnihluta Samfylkingar, Viðreisnar, og Miðflokksins sagði að of miklir veikleikar væru í rekstrinum og að bæjarsjóður treysti of mikið á tekjur af lóðaúthlutunum, en án þeirra hefði hallinn verið um hálfum milljarði hærri. Meirihlutinn sagði þá fullyrðingu ekki standast skoðun.
Verri
Í þriðja fjölmennasta sveitarfélaginu, Hafnarfirði, var staðan öllu verri á fyrstu sex mánuðum ársins en í Kópavogi.
Rekstrarniðurstaða samstæðunnar A og B hluta var neikvæð um 1.9 milljarða króna. á fyrri helmingi ársins 2026 en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 887 milljóna króna hagnaði.
Hallinn er enn meiri í A-hlutanum einum en hann var rekinn með 2,4 milljarða króna halla fyrstu sex mánuðina en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 435 milljóna króna hagnaði.
Var þessi niðurstaða skýrð einkum með frávikum í tekjum af byggingarréttargjöldum, hærri rekstrarkostnaði og hærri verðbólgu en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Þórður Þórarinsson bæjarstjóri vísaði einnig til þess að fræðslumál og velferðamál hefðu reynst kostnaðarsamari en gert var ráð fyrir.
Suður með sjó
Þegar kemur að fjórða fjölmennasta sveitarfélaginu, Reykjanesbæ, þá kemur fram í frétt Víkurfrétta frá í gær að bærinn hafi verið rekin með halla á fyrstu sex mánuðum ársins. Þar er vísað í bókun frá meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks en ekki tekið fram á hvaða fundi sú bókun hefur verið lögð fram og umrædd bókun er ekki sjáanleg á vef bæjarins. Þegar þessi orð eru rituð er engar upplýsingar að finna á vef bæjarins um árshlutauppgjörið. Með fundargerð fundar bæjarstjórnar, sem haldinn var á þriðjudag, er birt fundargerð bæjarráðs frá 17. september þar sem fram kemur að á fundinum hafi verið tekin fyrir drög að uppgöri fyrir fyrstu sex mánuði ársins. Síðarnefndu fundargerðina er hins vegar ekki að finna á lista á vef bæjarins yfir fundargerðir nefnda og ráða, en útgáfan sem er birt með fundargerð bæjarstjórnar er í pdf-skjali.
Í frétt Víkurfrétta kemur fram rekstrarniðurstaða fyrstu sex mánaða ársins hafi verið neikvæð um tæplega 103 milljónir króna, þrátt fyrir að fjárhagsáætlun hafi gert ráð fyrir rúmlega 93 milljóna króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu. Það er ekki tekið fram hvort þetta á við um bæði A- og B-hluta en miðað við samhengið þá virðist þetta varða rekstur A-hlutans. Í bókun meirihlutans segir að 366 milljónir króna í óáætlaðar einskiptistekjur vegna HS Veitna hafi komið í veg fyrir að hallinn væri enn meiri. Skýrir meirihlutinn meiri halla en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins, sem samþykkt var í tíð meirihluta Samfylkingar, Framsóknar og Beinnar leiðar, einkum með hærri fjármagnskostnaði og hærri kostnaði vegna vöru- og þjónustukaupa. Sjálfstæðismenn og Miðflokksmenn segja hins vegar að síðasti meirihluti hafi verið með lausatök á fjármálum bæjarins og að í fjárhagsáætlun næsta árs verði tökin hert.
Garðabær
Í fimmta stærsta sveitarfélaginu Garðabæ var halli á fyrstu sex mánuðum ársins en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir afgangi.
A-hluti var rekinn með 616,8 milljóna króna halla en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir 146,2 milljóna króna afgangi. Þegar B--hlutinn er tekinn með í reikninginn var hallinn 277,2 milljónir en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir 594,9 milljónum króna í afgang.
Þegar uppgjörið var rætt á bæjarstjórnarfundi fyrir viku lýstu fulltrúar minnihlutans, Framsóknarflokksins, Samfylkingarinnar og Garðabæjarlistans yfir áhyggjum. Ljóst væri að fjármagnskostnaður legðist þyngra á Garðabæ en nágrannasveitarfélög, vegna uppbyggingar í bænum. Handbært fé frá rekstri A-hluta hafi verið neikvætt um 113 milljónir króna, sem undirstrikaði þörfina á að styrkja grunnreksturinn og draga úr þörf fyrir frekari lántökur. Eins og minnihlutinn gerði í Kópavogi vísaði minnihlutinn í Garðabæ einnig til þess að án sölu byggingarréttar væri staða rekstrarins enn veikari, og í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu væri augljóst að ekki yrði hægt að treysta á þær tekjur í sama mæli og á undanförnum árum.
Meirihluti Sjálfstæðisflokksins sagði hins vegar reksturinn vera traustan en það væri hinn hái fjármagnskostnaður sem væri þyngstur í vöfum.
Norður yfir heiðar
Loks verður hér nefndur rekstur sjötta fjölmennasta sveitarfélagsins, Akureyrar.
Á fyrstu sex mánuðum ársins var A-hlutinn, bæjarsjóður, rekinn með 362,7 milljóna króna halla sem var þó betri niðurstaða en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir en hún hljóðaði upp á 486,9 milljóna króna halla. Samstæðan öll, A- og B-hluti, var rekin með 87,4 milljóna króna halla en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir 30,1 milljón í afgang.
Hvorki meiri- né minnihluti bæjarstjórnar lagði fram bókun þegar uppgjörið var staðfest á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag. Í tilkynningu frá bænum var rekstrarniðurstaðan einkum skýrð með hærri verðbólgu og hærri lífeyrisskuldbindingum en gert hefði verið ráð fyrir í fjárhagsáætlun.
Þótt skýringar á hallarekstri stærstu sveitarfélaganna séu ekki alls staðar nákvæmlega þær sömu þá er ljóst að hjá þeim öllum hefur hærri fjármagnskostnaður og verðbólga en gert var ráð fyrir haft töluvert að segja.