Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að hún geti ekki ímyndað sér að Halla Gunnarsdóttir formaður VR hafi heimild frá BSRB til að hóta uppsögn kjarasamninga á opinberum vinnumarkaði. Breiðfylkingin, sem er Efling, Starfsgreinasambandið og fleiri stéttarfélög á almennum vinnumarkaði, hafa samþykkt að framlengja kjarasamninga þrátt fyrir forsendubrest. Sendir Sólveig Anna eitraða pillu um fávíst fólk.
Í ítarlegri færslu á Facebook þakkar Sólveig Anna stjórnvöldum fyrir aðkomu sína að því máli en með því samkomulagi á að byggja íbúðir fyrir tekjulága, hækka barnabætur, innleiða leigubremsu og frumvarp um viðurlög við launaþjófnaði, sem Sólveig Anna kallar févíti.
Halla sagði í morgun að VR hygðist slíta kjarasamningi við SA. Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA, sagði í Dagmálum á MBL að VR fengi engan betri samning en nú væri í boði. Benti Halla á að ef VR segir upp samningum þá geti opinberu félögin, eins og BSRB, einnig sagt upp sínum kjarasamningum. „Þau munu þurfa að taka ákvörðun um hvort þau fylgi því eftir. Ég veit að mörg þeirra eru að skoða það eins og sakir standa,“ sagði Halla við Vísi. Til stendur að segja upp samningunum formlega eftir hádegi í dag.
„Það er auðvitað þeirra réttur – mögulega fátt um það að segja. En nú bregður svo við að formaður VR hótar einnig ófrið á opinberum vinnumarkaði. Það ætti að koma öllum verulega á óvart, enda er það svo að VR er ekki, eftir því sem ég best veit, með neina félagsmenn sem starfa á opinberum vinnumarkaði,“ segir Sólveig Anna.
„Ég get ekki ímyndað mér að formaður VR hafi frá formanni BSRB einhverkonar heimild til að hóta uppsögn kjarasamninga hennar fólks BSRB eru stærstu samtök opinberra starfsmanna á Íslandi, með 18 aðildarfélög og 25.000 félagsmenn um allt land innan sinna vébanda.“
Umsamdar launahækkanir falli niður
Þá sé fátt annað í stöðunni en verkfallsátök:
„Ef hótanir formanns VR um ófrið á opinberum vinnumarkaði með uppsögn þeirra samninga ganga eftir falla niður þegar umsamdar launahækkanir tugþúsunda einstaklinga sem koma til framkvæmda á næsta ári, og fólk hefur þá væntanlega ekki um annað að ræða en að fara að undirbúa verkfallsátök. Það væri áhugavert að heyra hvort að slík staða hafi verið rætt í stjórnum og trúnaðarráðum félaga BSRB, en þar eru þessar ákvarðanir teknar,“ segir Sólveig Anna.
„Það er mikilvægt að fram komi að Efling, SGS og Samiðn sem mynda breiðfylkinguna, eru með innan sinna raða þúsundir félagsmanna sem starfa á opinberum vinnumarkaði; í Eflingu eru það um 5000 manns, mest konur í umönnunarstörfum. Fulltrúar þeirra eru í stjórn og trúnaðarráði félagsins og tóku ásamt öðrum þar ákvörðun um að segja ekki upp kjarasamningum. Ég tel að afstaða SGS og Samiðnar sé sú sama – þar verður kjarasamningum á opinberum vinnumarkaði ekki sagt upp. Ég hef aldrei áður upplifað að formaður VR hóti ófriði hjá opinberum starfsmönnum í kjaradeilum félagsins. Hér er verið að skrifa nýjan kafla í samskiptum svokallaðra aðila vinnumarkaðarins – í hvaða tilgangi og með hverra leyfi það er gert reynist mér erfitt að skilja.“
Eitruð pilla um fávíst fólk
Sólveig Anna segir að hún og félagar hennar í Eflingu séu ánægð með aðkomu stjórnvalda og ASÍ.
„Okkur finnst leitt að sú mikla og mikilvæga vinna hafi ekki nægt til að friða formann VR og forystu fagfélaganna. Þau hafa greinilega allt annað mat á stöðunni en við. Það væri ánægjulegt ef að öll félög ASÍ gætu verið saman í því að gleðjast yfir raunverulegum árangri í baráttunni gegn þeim miklu skömm sem brotastarfsemi á vinnumarkaði er fyrir samfélagið okkar.“
Bætti hún svo við lokaorðum sem varla er hægt að skilja öðruvísi en sem eitraða pillu, þá til formanns VR:
„Læt þær vera lokaorðin – í bili allavega, og fer til fundar við stjórn Eflingar, stærsta félags verkafólks á landinu, félag fólksins sem með vinnu sinni framleiðir verðmætin og heldur umönnunarkerfunum gangandi, fólksins sem veit að við fáum ekkert án þess að þurfa fyrir því að hafa og veit þess vegna hvenær okkur eru færð raunveruleg verðmæti, verðmæti sem við höfum barist fyrir árum saman. Aðeins fávíst fólk sem þekkir ekki baráttuna og alvarleika vandamálanna sem við tökumst við á hverjum degi getur tekið þá ákvörðun að fúlsa við þeim.“